Dómkirkjan

 

Bjarni Harðarson verður gestur okkar í dag í Opna húsinu kl. 13.30. Ásta er tilbúin með veisluborðið. Hlökkum til að sjá ykkur!

Laufey Böðvarsdóttir, 22/3 2018

Prestsvígsla í Dómkirkjunni. Sunnudaginn 25. mars nk. mun biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, vígja guðfræðing til þjónustu. Mag. theol. Díana Ósk Óskarsdóttir, verður vígð til prestsþjónustu á Landspítalanum. Vígsluvottar verða séra Sveinn Valgeirsson, séra Sigrún Óskarsdóttir, séra Fritz Már Berndsen Jörgensson, séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir og séra Helga Soffía Konráðsdóttir prófastur sérþjónustunnar sem jafnframt lýsir vígslu.

Laufey Böðvarsdóttir, 22/3 2018

Fermingar vorið 2018

Pálmasunnudagur kl.11.
Ásta Matthea Sigurðardóttir
Spánn
Ragnheiður Ugla Ocares Gautsdóttir
Bræðraborgarstíg 31
101 Reykjavík
Steinþór Snær Hálfdánarson
Hólatorgi 6
101 Reykjavík
Valur Guðmundssson
Brúarflöt 6
210 Garðabæ
Skírdagur kl. 11
Auður Sigmundsdóttir
Laufásvegi 8
101 Reykjavík
Decca Jóhannesdóttir Huber
Leirubakka 32
109 Reykjavík
Hvítasunnudagur kl.11
Birgir Steinn Styrmisson
Selbraut 7
170 Seltjarnarnesi
Brimir Sær Bragason
Ásvallagötu 14
101 Reykjavík
Daníel Fróði Bogason
Framnesvegi 2
101 Reykjavík
Freyr Þrastarson
Hringbraut 100
101 Reykjavík
Hekla Júlía Kristinsdóttir
Ásvallagötu 10a
101 Reykjavík
Henrik Nói Júlíusson Kemp
Sjafnargötu 4
101 Reykjavík
Hólmfríður K. Gunnarsdóttir
Sólvallagötu 7a
101 Reykjavík
Ingibjörg Fía Hauksdóttir
Ásvallagötu 1
101 Reykjavík
Ísak Andrason
Laufásvegi 58
101 Reykjavík
Jóhanna Helga Ingadóttir
Öldugötu 6
101 Reykjavík
Kristófer Ingi Kjærnested
Sólvallagötu 10
101 Reykjavík
Marinó Tómasson
Hávallagötu 30
101 Reykjavík
Pétur Reidar Kolsöe Pétursson
Frostaskjóli 9c
107 Reykjavík
Sindri Hrafn Rúnarsson
Grundarstíg 15
101 Reykjavík
Sólvin Tómasson
Hávallagötu 30
101 Reykjavík
Tanja Rut Rúnarsdóttir
107 Reykjavík.
27. maí kl.11
Anna Þrastardóttir
Vesturgötu 19
101 Reykjavík

Laufey Böðvarsdóttir, 19/3 2018

Verið velkomin í Dómkirkjuna í kvöld kl. 19 á frábæra kórtónleikar! Walter Payton kórinn. Stjórnandi – Kate Johnston Meðlimir Walter Payton kórsins undir stjórn Kate Johnston eru hæstánægð með að koma til Íslands. Kórinn hefur unnið til verðlauna fyrir söng sinn og samanstendur af söngvurum á aldrinum 14-18 ára. Framúrskarandi raddir þessara ungu söngvara fara létt með efnisskrá sem samanstendur af klassískum söngvum, gospel- og nútímatónlist sem og söngvum hvaðanæva að úr heiminum. Þann 19. mars kl. 19:00

Untitled

Walter Payton Choir Concert Director – Kate Johnston

The Award-Winning Walter Payton Concert Choir, under the direction of Kate Johnston, is thrilled to be traveling to Iceland! This 49-voice ensemble comprises singers from ages 14 – 18. These outstanding young voices master repertoire of all genres including classical, gospel, spirituals, contemporary, and world music.

  March 19, 19:00

Dómkirkjan

Laufey Böðvarsdóttir, 19/3 2018

Messa á morgun, sunnudag kl.11. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Oddur Björnsson les bæn og ritningarlestrana lesa þau Svava Bernharðsdóttir og Ólafur Hjálmarsson. Skemmtilegur og fræðandi sunnudagaskóli á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Minni á bílastæðin við Alþingi.
Æðruleysismessa er kl. 20. Kyrrð, ró, Tólf sporin, hugleiðing, bæn, söngur, samvera. Njótum þess að koma saman, taka okkur úr amstri dagsins, leita inn á við, leita Æðri máttar, tengja okkur og endurnærast.
Díana Ósk leiðir stundina, Fritz Már flytur hugleiðingu, félagi deilir reynslu sinni og Kristján Hrannar flytur frumsamin lög og texta
Á mánudagskvöldið kl. 19 eru tónleikar, Walter Payton kór frá Bandaríkjunum verða með klukkustundartónleika.
Á þriðjudaginn er bæna-og kyrrðarstund í hádeginu og Bach tónleikar kl. 20.30.
Samtal um trú kl. 18 á miðvikudaginn, þá mun Kristján Valur Ingólfsson fjalla um aðskilnað ríkis og kirkju. Næstkomandi fimmtudag kemur Bjarni Harðarson í Opna húsið kl. 13.30.
Síðastliðinn fimmtudag var Gunnar Kvaran gestur okkar og sagði hann frá ýmsu skemmtilegu sem hefur á daga hans drifið sem sellóleikari.IMG_5983 IMG_5988

Laufey Böðvarsdóttir, 17/3 2018

Séra Sveinn Valgeirsson, prédikar sunnudaginn 18. mars kl. 11. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu, Svava Bernharðsdóttir og Ólafur Hjálmarsson lesa ritningarlestrana. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar.

Laufey Böðvarsdóttir, 16/3 2018

Bandarískur kór með tónleika í Dómkirkjunni 19. mars kl.19

Untitled

Walter Payton Choir Concert Director – Kate Johnston

The Award-Winning Walter Payton Concert Choir, under the direction of Kate Johnston, is thrilled to be traveling to Iceland! This 49-voice ensemble comprises singers from ages 14 – 18. These outstanding young voices master repertoire of all genres including classical, gospel, spirituals, contemporary, and world music.

  March 19, 19:00

Dómkirkjan

 

Reykjavik Cathdral Kirkjustræti, 101 Reykjavík, Iceland

 

Walter Payton Domkirkjan Concert 2018

Laufey Böðvarsdóttir, 16/3 2018

Séra Eva Björk Valdimarsdóttir prédikar sunnudaginn 11. mars kl. 11. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns. Ása Ólafsdóttir orgelnemandi í MÍT leikur for-og eftirspil. Kári Þormar organisti og Dómkórinn. Minnum á gjaldfrjáls bílastæði við Alþingi. Hlökkum til að sjá ykkur!

IMG_5784

Laufey Böðvarsdóttir, 11/3 2018

Samtal um trú miðvikudaginn 7. mars kl. 18

Efnt verður til samtals um trú, kirkju og samfélag í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a nú á föstunni.

7. mars mun dr. Magnús Þorkell Bernharðsson fjalla um islam í samtímanum og tengdist það bók hans sem mun koma út um það leyti.
14. mars fjallar dr.  Skúli Sigurður Ólafsson um altarissakramentið og ber fyrirlesturinn yfirskriftina: „Að sættast við Guð, náungann og valdið. Altarisganga á Íslandi á lærdómsöld.”
21. mars fjallar sr. Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup emeritus um samband ríkis og kirkju í sögu og samtíð.

Dagskrá hefst alla dagana kl. 18:00 með fyrirlestri frummælenda, þá verður gert hlé og veitingar seldar við vægu verði og að því loknu verða umræður. Stefnt er að því að dagskránni verði lokið 20:30.

Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Laufey Böðvarsdóttir, 6/3 2018

Við fáum góðan gest á fimmtudaginn í Opna húsið, en Guðmundur Brynjólfsson er gestur okkar að þessu sinni. Guðmundur Brynjólfsson er djákni í Þorlákshafnarprestakalli, rithöfundur og verkefnisstjóri Biblíufélagsins. Hann hefur gefið út nokkrar skáldsögur, skrifað leikrit og fleira. Guðmundur mun lesa upp úr síðustu bók sinni, sem kom út nú fyrir síðustu jól, en hún heitir Tímagarðurinn. Sjáumst í safnaðarheimilinu kl. 13.30 á fimmtudaginn!

Laufey Böðvarsdóttir, 28/2 2018

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Mánudagur

Annan mánudag í mánuði kl. 18.00, samvera hjá Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar yfir vetrartímann

Dagskrá ...