Dómkirkjan

 

Sunnudaginn 13. október er messa klukkan 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir, Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn. Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra sérstaklega boðin velkomin. Messukaffi í safnaðarheimilinu.

Laufey Böðvarsdóttir, 11/10 2024

Á föstudaginn eru tónleikar með Apparat Organ Quartet og Dómkórnum. Í rúma klukkustund frá klukkan 21.00 mun rafmagnaður hljóðheimur Apparatsins umlykja ómþýðan söng Dómkórsins

Apparat Organ Quartet skipa þeir Hörður Bragason, Sighvatur Ómar Kristinsson og Úlfur Eldjárn sem leika á mis-rafmögnuð orgel og hljóðgervla, og Arnar Geir Ómarsson sem leikur á slagverk. Stjórnandi Dómkórsins er Guðmundur Sigurðsson.
Tíðasöngur þri-mið-og fimmtudag kl. 9. 15 og kl. 17.00 á fimmtudaginn. Bæna-og kyrrðarstund kl. 12.00 á þriðjudaginn. Léttur hádegisverður eftir stundina. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar kl. 20.00 Á miðvikudaginn er örganga með séra Elínborgu Stuludóttir, hefst með hugleiðingu í kirkjunni klukkan 18.00. Á fimmtudaginn er Birgir Þórarinsson alþingismaður gestur okkar í Opna húsinu kl. 13.00. Sunnudaginnn 13. október er messa klukkan 11.00 sr. Elínborg Sturludóttir prédikar, Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn. Fermingarbörn og forráðamenn þeirra sérstaklega boðin velkomin. Messukaffi.

Laufey Böðvarsdóttir, 10/10 2024

Sunnudaginn 6. október er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Guðmundur Sigurðsson og Dómkórinn. Verið velkomin!

Laufey Böðvarsdóttir, 5/10 2024

Fyrsta Opna húsið á þessu hausti verður fimmtudaginn 3. október kl. 13.00 í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Gestur okkar þá er Margrét Sigfúsdóttir fyrrverandi skólastjóri Hússtjórnarskólans.

Margrét sigfúsdóttir
Margrét ætlar að rifja upp margar skemmtilegar minningar.
10. október er gestur okkar Ásmundur Friðriksson alþingismaður og 17. október Hafrún Birna Björnsdóttir víóluleikari.
Gott með kaffinu og skemmtilegt samfélag. Verið velkomin og takið með ykkur gesti.

Laufey Böðvarsdóttir, 2/10 2024

Dómkirkjan er eitt elsta hús Reykjavíkur, fyrsti hluti hennar vígður árið 1796, og í núverandi mynd 1847. Hefur hún því verið helgidómur Reykvíkinga í á þriðju öld, á helgum og hátíðum, gleði og sorgum. Engin stofnun borgarinnar á sér eins samfellda sögu. Í bæn og söng og orðinu helga er trú, von og kærleika borið vitni, til að styrkja samfélagið og sameiginlega sýn til hins góða, fagra og fullkomna. Auk helgihalds í hinu aldna húsi heldur Dómkirkjusöfnuðurinn uppi fjölbreyttu safnaðarstarfi fyrir fólk á öllum aldri, óháð trúfélagsaðild.

Guðsþjónustur eru alla sunnudaga og á hátíðum ársins, fyrirbænaguðsþjónustur alla þriðjudaga í hádeginu, tíðasöngur og örpílagrímagöngur, Bach tónleikar Ólafs Elíassonar öll þriðjudagskvöld. Þar við bætast athafnir eins og jarðarfarir, hjónavígslur og skírnir við hinn fagra skírnarfont sem listamaðurinn, Bertil Thorvaldsen, gaf föðurlandi sínu árið 1839. Auk þess er boðið upp á fermingarfræðslu, þróttmikið kórstarf, tónleika og fræðslu í trú og sið og andlegrar umhyggju. Í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar að Lækjargötu 14b, gamla Iðnskólahúsinu, eru skrifstofur prestanna og fræðslustarfið, opið hús á fimmtudögum, hádegisverður á þriðjudögum að lokinni bænastund. Safnaðarheimilið er líka leigt út fyrir skírnarveislur og aðrar samverur.

Prestar Dómkirkjunnar eru: sr. Sveinn Valgeirsson sóknarprestur og sr. Elínborg Sturludóttir. Kirkjuhaldari og framkvæmdastjóri er Laufey Böðvarsdóttir. Dómorganisti er Guðmundur Sigurðsson og Katla Jónsdóttir er kirkjuvörður. Formaður sóknarnefndar er Einar S.Gottskálksson.

Dómkirkjusöfnuðurinn ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi Dómkirkjunnar og Safnaðarheimilisins sem eru friðuð hús og með merkustu og fegurstu byggingum borgarinnar. Félagsgjöld sóknarbarna, svonefnd sóknargjöld sem greidd eru sem hlutfall af tekjuskatti, hafa hvergi nærri fylgt verðlagsþróun og eins hefur gjaldendum fækkað. Því viljum við gefa fólki kost á því að gerast Vinir Dómkirkjunnar og styðja við starf hennar með reglubundnum framlögum á reikning sóknarinnar: Banki: 513-15-160250 kennitala: 500169-5839.  Margt smátt gerir eitt stórt og þitt framlag skiptir máli.

Með nýjum lögum um almannaheillastarfsemi er hægt að styðja við Dómkirkjuna og fá skattafrádrátt. Er einstaklingum heimilt að draga allt að 350 þúsund krónur á ári frá skattskyldum tekjum sínum utan atvinnurekstrar vegna framlaga til almannaheillastarfsemi.

Til þess að einstaklingur fái frádrátt þurfa gjafir/framlög hans á árinu að vera a.m.k. 10.000 kr. Frádráttur þessi er ekki millifæranlegur hjá hjónum/sambúðarfólki. Framlög/gjafir á framangreindu bili veita afslátt af tekjuskattsstofni.  Þessi nýju lög eru hvatning almenningi til að láta gott af sér leiða á vettvangi frjálsra félagasamtaka. Eins og þáverandi fjármálaráðherra sagði við samþykkt laganna, þá eru þau „skýr skilaboð til þeirra þúsunda sjálfboðaliða sem starfa við almannaheillastarfsemi um allt land um að störf þeirra séu mikils metin og skipti okkur öll máli.“

Viltu skrá þig í Dómkirkjusöfnuðinn og Þjóðkirkjuna? Það er einfalt og þú getur gert það á netinu https://kirkjan.is/kirkjan/skraning-i-kirkjuna/

 

Viltu vera vinur Dómkirkjunnar?   Þá getur þú lagt styrk inn á reikning sóknarinnar.

 Banki: 513-15-160250. Kennitala 500169-5839

domkirkjan@domkirkjan.is.

Viltu styrka flygilsjóð Dómkirkjunnar

Banki: 358-22-1350. Kennitala 500169-5839.

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2024

Góð vika framundan í safnaðarstarfinu

Tíðasöngur þri-mið-og fimmtudag kl. 9. 15 og kl. 17.00 á fimmtudaginn. Bæna-og kyrrðarstund kl. 12.00 á þriðjudaginn. Skemmtileg og fræðandi stund með fermingarbörnunum á þriðjudaginn. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar kl. 20.00 Á miðvikudaginn er örganga með séra Elínborgu Stuludóttir, hefst með hugleiðingu í kirkjunni klukkan 18.00. Á fimmtudaginn er Margrét Sigfúsdóttir gestur okkar í Opna húsinu kl. 13.00. Sunnudaginnn 6. október er messa klukkan 11.00 sr. Sveinn Valgeirsson prédikar.
Minnum á að Apparat Organ Quartet og Dómkórinn í Reykjavík verða með tónleika þann 11. október næstkomandi. Í rúma klukkustund frá klukkan 21.00 mun rafmagnaður hljóðheimur Apparatsins umlykja ómþýðan söng Dómkórsins.
Apparat Organ Quartet skipa þeir Hörður Bragason, Sighvatur Ómar Kristinsson og Úlfur Eldjárn sem leika á mis-rafmögnuð orgel og hljóðgervla, og Arnar Geir Ómarsson sem leikur á slagverk. Stjórnandi Dómkórsins er Guðmundur Sigurðsson.
Sjáumst í safnaðarstarfinu!

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2024

Þökkum Valgeiri, Kristrúnu, Joel, Sálmabandinu og Ástu Kristrúnu fyrir skemmtilega tónleika í gær og ykkur öllum sem komuð.

ásta og sálmab

Laufey Böðvarsdóttir, 29/9 2024

Lofum ykkur frábærum tónleikum á laugardaginn klukkan 18.00. Lokaæfingin var í gær og allir fóru á kostum. Valgeir Guðjónsson í öllum sínum margbreytileika.

20240926_194802 Valgeir Guðjónsson er þekktur fyrir að feta ótroðnar slóðir og tónbogi hans er víðari en margflestra.
Á tónleikunum má glöggt greina margbreytileika þessa ástsæla tónlistarmanns þjóðarinnar.
Fram kemur alveg spánýtt fylgdarlið sjálft Sálmabandið með Svein Valgeirsson Dómkirkjupresti, Telmu Rós Sigfúsdóttur, Jóni Ívars, Ásu Briem og Sigmundi Sigurðarsyni. Einnig öflugt tónlistapar austan frá Kálfholti Kristrúnu Steingrímsdóttur og Joel Christopher Durksen. Lagakynningar eru í höndum meðhjálpara tónskáldsins Ástu Kristrúnar.
Miðasala á tix.is og við innganginn.
Hlökkum til að eiga skemmtilega stund með ykkur!

Laufey Böðvarsdóttir, 27/9 2024

Messa 29. september kl. 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir, Guðmundur Sigurðsson dómorganisti og Dómkórinn

Laufey Böðvarsdóttir, 26/9 2024

Tónleikar á laugardaginn klukkan 18.00

Valgeir Guðjónsson er þekktur fyrir að feta ótroðnar slóðir og tónbogi hans er víðari en margflestra.

Á tónleikunum má glöggt greina margbreytileika þessa ástsæla tónlistarmanns þjóðarinnar.

Fram kemur alveg spánýtt fylgdarlið sjálft Sálmabandið með Svein Valgeirsson Dómkirkjuprest í fararbroddi og hið öfluga tónlistapar austan frá Kálfholti Kristrún Steingrímsdóttir og Joel Christopher Durksen. Lagakynningar eru í höndum meðhjálpara tónskáldsins Ástu Kristrúnar.

Miðasala á tix.is og við innganginn.

Laufey Böðvarsdóttir, 24/9 2024

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...