Sunnudaginn 14. nóvember verða tvær messur í Dómkirkjunni. Kl. 11 prédikar sr. Þorvaldur Víðisson.
Kl. 14 fáum við heimsókn úr Húnaþingi. Sr. Sveinbjörn Einarsson messar. Kór Þingeyraklaustursprestakalls syngur kórstjóri er Sigrún Grímsdóttir Organisti er Sólveig S. Einarsdóttir. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin.
Ástbjörn Egilsson, 11/11 2010
Nýr Dómkór heldur tónleika
Fyrstu tónleikar nýs Dómkórs verða haldnir sunnudaginn 14. nóvember kl. 20 í Dómkirkjunni. Sérstakur gestur verður einn fremsti baritonsöngvari okkar Íslendinga og fyrrum Dómkórsfélagi, Hrólfur Sæmundsson. Hann hefur nýverið slegið í gegn í stórum hlutverkum í Þýskalandi, nú síðast í titilhlutverkinu í Évgení Onegin eftir Tjækovskí. Lesa áfram …
Ástbjörn Egilsson, 11/11 2010
Helgistundir sunnudagsins eru tvær sú fyrri, messa hefst kl. 11. Þá mun sr. Hjálmar Jónsson predika og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar dómorganisti. Að lokinni messu er kaffi í safnaðarheimilinu.
Kl. 20 er minningarstund um látna ástvini. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur undir stjórn Kára Þormar organista. Prestar dómkirkjunnar sr. Hjálmar og sr. Anna Sigríður eru með upplestur og fyrirbæn.
Ástbjörn Egilsson, 4/11 2010
Í messunni næsta sunnudag sem er 22. sd. eftir þrenningarhátíð prédikar sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Organisti er Kári Þormar og meðhjálpari Ástbjörn Egilsson. Í messuna er sérstaklega boðið fermingarbörnum og foreldrum þeirra og munu þau taka þátt í messunni . Barnastarfið er á kirkjuloftinu að venju.
Ástbjörn Egilsson, 28/10 2010
Biskup Færeyja Jógvan Fríðriksson er í heimsókn hér á landi. Í kvöld verður hann með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Með honum í för verða sr. Heri Joensen, sóknarprestur í Vesturkirkjunni í Þórshöfn, og þrír fulltrúar í kirkjuráði færeysku Þjóðkirkjunnar.Að lokinn guðsþjónustinn er kaffi í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í boði Færeyingafélagsins. Allir hjartanlega velkomnir.
Ástbjörn Egilsson, 25/10 2010

Anna Sigríður
Í messu sunnudagsins 24. október prédikar sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Organisti er Kári Þormar,Sönghópur úr Dómkórnum syngur. Meðhjálpari er Ólöf Guðrún Helgadóttir. Barnastarfið á kirkjuloftinu verður í umsjá Móeiðar Júníusdóttur.
Ástbjörn Egilsson, 23/10 2010
Næsta sunnudag prédikar sr. Þorvaldur Víðisson í messu kl. 11. Að lokinni messu verður fundur með fermingarbörnum og foreldrum þeirra. Rætt verður um fermingarfræðsluna og dagskrána eftir áramót. Að lokinni messu er stuttur fundur með fermingarbörnum
Ástbjörn Egilsson, 19/11 2009