Næsta sunnudag þann 7. júlí er messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Í messunni verður fermd Stefanía Inga Sigurjónsdóttir, ung stúlka sem býr í Finnlandi.
Ástbjörn Egilsson, 2/7 2013
Sunnudaginn 30. júní prédikar sr. Sveinn Valgeirsson og þjónar fyrir altari í messunni kl. 11. Sönghópur úr Dómkórnum syngur, organisti er Kári Þormar
Ástbjörn Egilsson, 25/6 2013
Á sunnudaginn kemur 23. júní er messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 21/6 2013
Að venju fer fram hátíðarguðsþjónusta að morgni þjóðhátíðardagsins. Athöfnin hefst kl. 10.15 . Biskup Íslands sr. Agnes M. Sigurðardóttir prédikar en Dómkirkjuprestarnir sr. Hjálmar Jónsson og sr. Sveinn Valgeirsson þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur en organisti og kórstjóri er Kári Þormar. Einsöng syngur Þórunn Vala Valdimarsdóttir. Athöfninni verður útvarpað.
Ástbjörn Egilsson, 12/6 2013
Sunnudaginn 16. júní er messa kl. 11. Sr. Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 12/6 2013
Næsta sunnudag kl. 11 er messa þar sem sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 6/6 2013
Á morgunn 6. júní verður alþingi sett. Að venju er guðþjónusta í Dómkirkjunni og hefst hún kl. 13.30 er alþingismenn og konur ganga frá þinghúsinu til kirkju með forseta Íslands og biskup í farabroddi. Biskup Íslands prédikar en sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur Dómkirkjunnar þjónar fyrir altari. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur en organisti er Steingrímur Þórhallsson.
Ástbjörn Egilsson, 5/6 2013
Næsti sunnudagur er Sjómannadagur. Að venju messum við kl. 11. Biskup Íslands sr. Agnes M. Sigurðardóttir prédikar en Dómkirkjuprestarnir sr. Hjálmar Jónsson og sr. Sveinn Valgeirsson þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur en organisti og stjórnandi er Kári Þormar. Sjómenn frá Landhelgisgæslunni lesa ritningartexta. Einsöng syngur Viðar Gunnarsson. Messunni er útvarpað en hún hefst með skrúðgöngu biskups og presta ásamt sjómönnum frá gæslunni og opinberum gestum, frá safnaðarheimili Dómkirkjunnar að kirkjunni.
Ástbjörn Egilsson, 29/5 2013
Á morgunn 30. maí er síðasta samvera eldri borgara starfsins á þessum vetri. Nú leggjum við land undir fót og förum úr bænum kl. 10 og ökum sem leið liggur til Grindavíkur og svo áfram með suðurströndinni til Eyrarbakka. Þar er nú sr. Anna Sigríður prestur og við heimsækjum hana í kirkjuna og borðum síðan hádegisverð í Rauða húsinu. Síðan förum við í skoðunarferð um Eyrarbakka og Stokkseyri. Áður en við höldum heim á leið þiggjum við kaffi í prestsbústaðnum. Sr. Sveinn Valgeirsson sem verið hefur prestur í Dómkirkjunni síðan á ágúst 2012 hverfur aftur til starfa á Eyrarbakka 1. september og sr. Anna kemur þá til baka. Þau taka saman á móti okkur í prestsbústaðnum en sr. Sveinn verður fararstjóri í ferðinni. Um 40 manns fara ferðina sem örugglega verður skemmtileg.
Ástbjörn Egilsson, 29/5 2013
Á sunnudaginn kemur 26. maí prédikar sr. Hjálmar Jónsson og þjónar fyrir altari í messunni kl. 11. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 23/5 2013