Dómkirkjan

 

Lúther og lífsgleðin verður umræðuefni fyrirlesturs dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar í safnaðarheimili Dómkirkjunnar í dag laugardaginn 18. febrúar kl.18. Dr. Sigurjón Árni mun bera saman Lúther og Predikarann og matreiða efnið á ögrandi og nýstárlegan máta. Lúther tók veruleikann mjög alvarlega og var sér vel meðvitaður um dökku og björtu hliðar mannlífsins.

Laufey Böðvarsdóttir, 18/2 2017

Æðruleysismessa á morgun, sunnudag kl. 20 í Dómkirkjunni.
Kæru félagar, vinir og aðrir, nú ætlum við að koma saman, biðja og íhuga, eiga stund saman frammi fyrir Æðri mætti, í nærveru við anda tólf sporanna. Sr. Karl mun flytja hugleiðingu, Sr. Sveinn mun leiða okkur í bæn, Ástvaldur verður við píanóið, félagi flytur reynslusögu og við fáum til okkar góða gesti, þau Myrru Rós Þrastardóttir og Júlíus Björgvinsson. Þar sem Myrra mun syngja fyrir okkur og Júlíus spilar undir.
Það eru allir velkomnir ♥

Laufey Böðvarsdóttir, 18/2 2017

Boðið verður til „samtals um trú“ sex miðvikudagskvöld á föstunni í safnaðarheimili Dómkirkjunnar kl. 18.00-20.30. Léttur kvöldverður borinn fram. 1. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Lúther. Ævi og starf. 8. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Lúther og barnafræðslan. 15. mars Sr. Karl Sigurbjörnsson: Gissur Einarsson og siðbótin á Íslandi. 22. mars Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson: Lúther og þjóðkirkjuhugtakið. 29. mars Sr. Sveinn Valgeirsson: Filippus Melankton. 5. apríl Sr. Kristján Valur Ingólfsson: Lúther og söngurinn. ​

Laufey Böðvarsdóttir, 18/2 2017

Á morgun, fimmtudag verður gestur okkar í Opna húsinu Hjálmar Hannesson, hann mun fjalla um Vestur Íslendinga. Sjáumst kl. 13.30 í Safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a.

Laufey Böðvarsdóttir, 15/2 2017

Sunnudaginn 19. febrúar kl 11 er messa í Dómkirkjunni. Séra Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskólinn í umsjón Sigurðar Jóns og Ólafs Jóns. Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Hlökkum til að sjá ykkur.

Laufey Böðvarsdóttir, 15/2 2017

Ungdóm með samveru í safnaðarheimilinu í kvöld, þriðjudagskvöld fyrir fermingarbörnin kl. 19.30-21.00. Flatbökur og fjör hjá Sigga og Bellu.

Laufey Böðvarsdóttir, 14/2 2017

Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar sunnudaginn 12. febrúar kl. 11. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns Magnússonar. Birgit Djupedal leikur á orgelið og Dómkórinn syngur. Í dag, þriðjudag er bænastund í hádeginu og Bach tónleikar í kvöld kl. 20.30-21.00. Verið velkomin í Dómkirkjuna.

Laufey Böðvarsdóttir, 7/2 2017

Karl Sigurbjörnsson – fyrir 44 árum á prestsvígsludegi. Á morgun ætla ég að fagna tímamótum með messu í Dómkirkjunni í fyrramálið kl.11. Þökk fyrir lífið, vináttuna, kærleikann, ástgjafir Guðs. Það væri notalegt að sjá þig.

16463826_10208118028967802_7657685482759844258_o

Laufey Böðvarsdóttir, 4/2 2017

Pétur Gunnarsson, rithöfundur verður gestur okkar á morgun, fimmtudag. Pétur mun segja okkur sögur úr vesturbænum. Veisluföng að hætti Ástu okkar og Karl biskup byrjar stundina með að flytja fallegt ljóð. Í liðinni viku voru gestir okkar systkinin Ásgeir og Sigrún Sigurgestsdóttir en þau gáfu út bók um Hólmfríði sjókonu. Mögnuð kona hún Hólmfríður, en hún var formóðir þeirra systkina. Sjáumst á morgun kl. 13.30 í safnaðarheimilinu og takið með ykkur gesti.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/2 2017

Messa sunnudaginn 5. febrúar kl 11. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og fagnar sjötugsafmæli sínu. Lesarar Birna Magnea Sigurðardóttir og Guðjón Davíð Karlsson. Dómkórinn syngur. Gunnar Kristinn Óskarsson leikur á trompet. Organisti Kári Þormar. Minni á bílastæðin gengt Þórshamri. Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/2 2017

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

 

Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS