Ellefu djákna- og prestsefni brautskráðust úr starfsþjálfun þjóðkirkjunnar við athöfn í Dómkirkjunni í dag 3. júlí. Þar með hafa þau öðlast embættisgengi sem gefur þeim rétt á að sækja um djákna- eða prestsstörf í þjóðkirkjunni. Starfsþjálfunin fer fram í söfnuðum undir handleiðslu djákna eða prests. Þau sem útskrifuðust eru Díana Ósk Óskarsdóttir, Dís Gylfadóttir, Dóra Sólrún Kristinsdóttir, Guðrún Hrönn Jónsdóttir, Fritz Már Jörgensson, Halla Elín Baldursdóttir, Karen Lind Ólafsdóttir, Kristín Kristjánsdóttir, María Rut Baldursdóttir, Viðar Stefánsson og Þórunn R. Sigurðardóttir. Biskup Íslands óskaði þeim til hamingju og fylgja bænir hennar sérhverju þeirra. Á myndinni eru kandídatarnir ásamt Rut G. Magnúsdóttur, djákna og formanni Djáknafélags Íslands, séra Önnu Sigríði Pálsdóttur, presti Dómkirkjunnar, sem leiddi helgistund við brautskráninguna og Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna, sem hafði umsjón með starfsþjálfuninni á liðnu ári. Óskum þeim hjartanlega til hamingju.
Laufey Böðvarsdóttir, 3/7 2014
Veturinn 2013-2014 stóðu nokkrar konur fyrir prjónakvöldum mánaðarlega í safnaðarheimilinu og fengu til sín góða gesti: Arndísi Sigurbjörnsdóttur, Guðna Ágústsson, Karl biskup, Helga Skúla Kjartansson, séra Hjálmar og séra Önnu Sigríði. Mjög góð þátttaka var á þessum kvöldum. Konurnar seldu súpu, kaffi og sætmeti og söfnuðu þannig vel á annað hundrað þúsund króna sem þær notuðu til að kaupa fjóra ljóskúpla sem vantaði í Dómkirkjuna. Meðal annars var brotinn kúpull fyrir ofan orgelið. Lengi var búið að leita af þessum kúplum, sem eru sérstakrar gerðar. Þorsteinn Bergsson hjá Minjavernd lagði okkur lið í þeirri leit, sem lauk þannig að verksmiðjan sem framleiddi þá á sínum tíma fannst í Þýskalandi og handgerðu þeir þessa kúpla fyrir Dómkirkjuna. Þökkum öllum þessum góðum gestum sem og öllum sem mættu á prjónakvöldin. Kirkjan þakkar konunum fyrir góða gjöf. Við sjáumst hress að nýju á prjónakvöldum í haust.
Laufey Böðvarsdóttir, 2/7 2014
Velkomin á bæna-og kyrrðarstund í hádeginu í dag kl. 12:10-12:30. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu á eftir.
Laufey Böðvarsdóttir, 1/7 2014
Uppáhalds Barokktónlist
Sunnudagur 29. júní kl. 20
Baroque Favourites
Sunday 8pm June 29.
‘Spiccato Strings’ in Dómkirkjan
- 2000 kr.
Laufey Böðvarsdóttir, 29/6 2014
Messa á morgun 29. júní kl. 11, séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kammerkór Dómkirkjunnar og organisti er Kári Þormar. Hjartanlega velkomin
Laufey Böðvarsdóttir, 28/6 2014
Biskup Íslands hefur skipað séra Svein Valgeirsson samkvæmt niðurstöðu valnefndar Dómkirkjunnar í embætti dómkirkjuprests frá 1. september að telja.
Dómkirkjan býður séra Svein Valgeirsson velkominn til starfa í haust og óskar honum og fjölskyldu hans allra heilla.
Laufey Böðvarsdóttir, 26/6 2014
Uppáhalds Barokktónlist
Laugardagur 28. júní kl. 20
Sunnudagur 29. júní kl. 20
Baroque Favourites
Saturday 8pm June 28.
Sunday 8pm June 29.
‘Spiccato Strings’ in Dómkirkjan
- 2000 kr.
Laufey Böðvarsdóttir, 26/6 2014
Hátíðlegur dagur í Dómkirkjunni í gær, Theodór Arnar Björnsson var fermdur og þrjú börn voru færð til skírnar, þau Bjørk, Magni Þór og Olivia Guðrún. Hjartans hamingjuóskir færum við þeim öllum og fjölskyldum þeirra. Margrét Hannesdóttir söng einsöng, en hún lauk masterprófi í söng frá Princeton Í BNA og mun syngja Norinu í Don Pasquale í Þýskalandi nú í sumar. Kammerkór Dómkirkjunnar og organisti var Kári Þormar
Laufey Böðvarsdóttir, 23/6 2014
Messa kl. 11 i dag 22. júní, séra Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Margrét Hannesdótti syngur einsöng, Kammerkór Dómkirkjunnar og organisti er Kári Þormar. Skírn og fermdur verður Theodór Arnar Björnssson. Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 22/6 2014