Dómkirkjan

 

Norsk messa í dag kl. 14 á þjóðhátíðardegi Norðmanna. Séra Hjálmar Jónsson prédikar.

Laufey Böðvarsdóttir, 17/5 2017

Embætti sóknarprests Dómkirkjunnar í Reykjavík auglýst laust til umsóknar

Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti sóknarprests í Dómkirkjunni í Reykjavík, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Skipað er í embættið frá 1. júlí n.k. til fimm ára. Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk.

Laufey Böðvarsdóttir, 16/5 2017

Bach tónleikar í kvöld kl. 20.30. Ólafur Elíasson leikur á flygilinn. Frítt inn.

Laufey Böðvarsdóttir, 16/5 2017

Æðruleysismessa sunnudaginn 21. maí kl. 20. Æðruleysismessur snúast um að dvelja hér og nú, að vera í nærveru hvers annars, við fætur Æðri máttar. Velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 15/5 2017

Við gleðjumst yfir landinu og lífi þess, sem nú fagnar vori og sumarkomu, með messu í Dómkirkjunni nk sunnudag kl. 11, á hinum almenna bænadegi. Þjóðlagasveitin Þula syngur og spilar íslensk þjóðlög, auk sálma. Sveitina skipa átta ung­menni á aldr­inum 15 til 17 ára stjórn Eydísar Franz­dóttur. Konur eru hvattar til að mæta í þjóðbúningum í tilefni vorsins. Væntanleg fermingarbörn, Lilja Hákonardóttir og Una Sigrún Zoega, lesa ritingarlestra. Karl biskup prédikar. Dómkórinn syngur. Organisti Kári Þormar.

IMG_2210 IMG_2201 IMG_2188 IMG_2173 IMG_2208 IMG_2204 IMG_2206 IMG_2194

Laufey Böðvarsdóttir, 15/5 2017

Kjartan Örn Styrkárson leikur á trompet í messunni á morgun. Hlökkum til að sjá ykkur.

Laufey Böðvarsdóttir, 14/5 2017

Séra Hjálmar Jónsson prédikar næstkomandi sunnudag. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er kominn í sumarfrí. Minnum á bílastæðin gengt Þórshamri.

Laufey Böðvarsdóttir, 11/5 2017

Vorferðin verður farin í Skálholt á morgun, fimmtudaginn 11. maí kl. 10 frá Umferðarmiðstöðinni.

Laufey Böðvarsdóttir, 10/5 2017

Þorvaldur Friðriksson var góður að vanda, en hann var gestur okkar í síðasta Opna húsinu. Vorferðin verður farin fimmtudaginn 11. maí kl 10 frá BSÍ. Karl biskup verður fararstjóri. Skráningu lýkur um hádegi, miðvikudag. Minni á Bach tónleika í kvöld kl. 20.30 í Dómkirkjunni. Næsta sunnudag prédikar séra Hjálmar Jónsson við messu kl. 11.

18301890_10155204076340396_1928885209754727544_n

Laufey Böðvarsdóttir, 9/5 2017

Séra Hjálmar Jónsson prédikar í dag 7. maí kl.11. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er kominn í sumarfrí. Minnum á bílastæðin gengt Þórshamri.

Laufey Böðvarsdóttir, 7/5 2017

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Þriðjudagur

- 12:00 Hádegisbæn
Bach tónleikar 20.00-20.30

Dagskrá ...