Næsti sunnudagur 30 október er nítjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Messa er kl. 11 í Dómkirkjunni að venju. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu undir leiðsögn Árna Gunnars og Ólafs Jóns.
Ástbjörn Egilsson, 27/10 2011
Næsta sunnudag , sem er kirkjudagur Dómkirkjunnar er messa kl. 11. Um þessar mundir eru 215 ár síðan Dómkirkirkjan í Reykjavík var vígð. Messunni er útvarpað. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar en sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu meðan á messu stendur.
Ástbjörn Egilsson, 21/10 2011
Næsta sunnudag 16. október eru tvær messur í Dómkirkjunni. Sú fyrri kl. 11, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgelið og Dómkórinn syngur. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu í umsjón þeirra Árna Gunnars og Magnúsar Jóns. Kl. 20 er síðan æðruleysismessa. sr. Anna prédikar einnig þar en sr. Karl V. Matthíasson leiðir stundina. Bræðrabandið sér um tónlistina.
Ástbjörn Egilsson, 11/10 2011
Sr. Hjálmar Jónsson sóknarprestur predikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Lesarar verða Eiríkur Þ. Einarsson og Karl Garðarsson. Meðhjálpari Ástbjörn Egilsson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Umsjón með því hafa Árni Gunnar Ragnarsson, Jóhanna Gísladóttir og Ólafur Jón Magnússon. Verið velkomin.
Hjálmar Jónsson, 3/10 2011
Næsta sunnudag 2. október er messa kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kári Þormar leikur á orgelið og Dómkórinn syngur. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu í umsjón þeirra Árna Gunnars og Magnúsar Jóns. Að lokinni messu er kaffi í safnaðarheimilinu.
Ástbjörn Egilsson, 28/9 2011
Sunnudaginn 18. september eru tvær messur í Dómkirkjunni. Kl. 11 messar sr. Hjálmar Jónsson. Barn verður borið til skírnar. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Sunnudagskólinn er á kirkjuloftinu á messutíma.
Kl. 20 er síðan æðruleysismessa. Sr. Karl V.Matthíasson prédikar en sr. Hjálmar Jónsson leiðir stundina. Bræðrabandið skipað þeim Herði og Birgi Bragasonum sér um tónlistina.
Ástbjörn Egilsson, 15/9 2011
Næsta sunnudag ,11. september verður messa kl. 11.00. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Fermingarbörn 2012 og fjölskyldur þeirra eru sérstaklega boðin til messunnar – og til altaris.
Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Barnastarf fer fram á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Árni Gunnar Ragnarsson og Ólafur Jón Magnússon sjá um starfið í vetur og víst er að mikið fjör verður á kirkjuloftinu í vetur.
Ástbjörn Egilsson, 6/9 2011
Sunnudaginn 3. september er messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Þennan sunnudag byrjar barnastarfið aftur með samveru á kirkjuloftinu.Við hvetjum foreldra til að koma með börnin og taka þátt í starfinu í vetur.
Ástbjörn Egilsson, 1/9 2011
Sunnudagurinn 28. ágúst er 10. sd. eftir þrenningarhátíð. Kl. 11 er messa í Dómkirkjunni. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 24/8 2011
Að venju er messað kl. 11 í Dómkirkjunni sunnudaginn 21. ágúst. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 20/8 2011