Séra Hjálmar Jónsson er í námsleyfi um einsmánaðar skeið og mun séra Karl Sigurbjörnssn leysa hann af á meðan. Séra Karl byrjar á morgun og mun hann leiða bæna-og kyrrðarstundina í hádeginu sem byrjar kl. 12:10. Að henni lokinni er góð máltíð í safnaðarheimilinu sem Ásta og Katrín sjá um. Hlökkum til að sjá ykkur.
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Bókin: Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum eftir sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson er komin úr prentun og er til sölu hjá Laufeyju í síma 520-9700. I Byggingasagan og II Í iðu þjóðlífs eftir sr. Þóri Stephensen fyrrum dómkirkjuprest komu út í einu bindi á 200 ára afmæli kirkjunnar 1996. Tíminn sem síðan er liðinn hefur verið mjög viðburðarríkur, framkvæmdir og breytingar hafa orðið sem nauðsynlegt var talið að gera skil.
Í þessarri bók er þó áherslan fyrst og fremst á starfinu í Dómkirkjunni og á vegum safnaðar hennar. Margt fólk hefur komið að þar við sögu og er sjálfsagt að hlut þess séu gerð skil, svo mjög sem allt það sem fram hefur farið hefur byggst á framlagi þess.
Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum er í pappírskilju, ríkulega prýdd myndum, eintakið kostar 5000 krónur.
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar heldur sinn fyrsta fund mánudaginn 13. október. Fundarkonur eru að koma í hús á milli 17 og 17:30.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands verður gestur okkar. Kirkjunefndin var stofnuð til þess að standa að prýði Dómkirkjunnar og vinna að líknarmálum. Kirkjunefndin hittist mánaðarlega yfir vetrartímann. Á næsta ári fögnum við 85 ára afmæli KKD.
KKD konur ætla að mæta í bleiku eða með eitthvað bleikt í tilefni af árveknis- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni sem stendur yfir í október.
Laufey Böðvarsdóttir, 10/10 2014
Ólöf Sesselja verður gestur okkar í Opna húsinu á morgun, fimmtudag (13:30-15:30). Hún verður með upplestur og góðar veitingar með kaffinu. Allir velkomnir.
Laufey Böðvarsdóttir, 8/10 2014
Kæru foreldrar og forráðamenn fermingarbarna.
Í kvöld fer Ungdóm-samveran að mestu leyti í undirbúning fyrir Landsmót. Það skiptir miklu máli að allir þeir sem ætla á Landsmót mæti því við ætlum að undirbúa atriði fyrir hæfileikakeppni sem verður á Landsmóti. Allir aðrir eru velkomnir að hjálpa til og við komum til með að gera fleira skemmtilegt saman.
Í kvöld er lokafrestur til að skila leyfisbréfi og 6000 kr. staðfestingargjaldi. ATH staðf.gjaldið gengur uppí mótsgjaldið.
Kær kveðja
Óli Jón og Siggi Jón
Laufey Böðvarsdóttir, 7/10 2014
Bæna – og kyrrðarstund í hádeginu á morgun, þriðjudag kl. 12:10.
Að henni lokinni er haldið í safnaðarheimilið og snætt saman. Íslensk kjötsúpa á boðstólnum, hún á vel við á haustdögum sem þessum og gómsæt er hún . Hlökkum til að sjá ykkur. Fyrirbænaóskir má hringja inn í síma 520-9700.
Laufey Böðvarsdóttir, 6/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 5/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 5/10 2014