Dómkirkjan

 

HVAÐ ER KRISTIN TRÚ? UM KRISTNA TRÚ Í SÖGU OG SAMTÍÐ

Hvernig varð kristin trú til? Hver er Jesús, þessi sögulega persóna sem allt hverfist um og var tekinn af lífi í Jerúsalem? Hvernig stóð á því að hann varð Kristur í trúarjátningum kristninnar? Hvernig þróaðist kristin trú þegar horft er til trúarlegra athafna, skipulags og helgihalds? Hvernig var sambandi háttað við önnur samfélög á þeim slóðum þar sem kristin trú breiddist út? Hvernig birtist kristin trú á vorum dögum og hvað einkennir hana? Hvernig á kristin trú að vera?

Dómkirkjan og Neskirkja halda námskeið í haust þar sem reynt verður að svara spurningunni „Hvað er kristin trú?“. Kennt verður sjö fimmtudagskvöld frá kl. 18-20. Námskeiðið hefst 17. september og stendur út október. Einnig verður kennt einn laugardag frá kl. 10-14.
Til hliðsjónar á námskeiðinu verður notuð bókin Hvað er kristin trú? Um kristna trú í sögu og samtíð, eftir Halvor Moxnes, prófessor við háskólann í Ósló. Moxnes er einn fremsti fræðimaður á svið biblíufræða á Norðurlöndum. Hvert kvöld byrjar með sameiginlegri máltíð.

STAÐSETNING
NESKIRKJA

HVENÆR
FIMMTUDAGSKVÖLD KL. 18-20

KENNARAR
HJÁLMAR JÓNSSON
SIGURVIN L. JÓNSSON
SKÚLI S. ÓLAFSSON
SVEINN VALGEIRSSON
RÚNAR REYNISSON

DAGSKRÁ
LÉTTUR KVÖLDVERÐUR
FYRIRLESTUR
UMRÆÐUR

17. september
„Hvern segja menn mig vera?“ Frá Jesú sögunnar til Krists trúarinnar
Við veltum fyrir okkur hvað við getum vitað um aðal-persónu kristinnar trúar, Jesú, og sömuleiðis því hvernig trúin á hann varð til.

24. september
„Munið hvað hann sagði ykkur.“ Biblían: Texti og túlkun
Kristin trú byggir á ritningum. Við skoðum þær nánar og spyrjum hvernig skuli túlka þær.

1. október
„Faðir vor“ Guðsmynd og mannskilningur
Við skoðum hvernig tungu-málið er notað í umfjöllun um Guð en það skiptir sköpum þegar við hugsum um sam-bandið milli guðs og manns.

8. október
„Fylg þú mér.“ Siðfræði og sjálfsmynd
Kristin siðfræði verður til umfjöllunar og það hvernig hún tengist kristnum mann-skilningi þar sem manneskj-an er sögð sköpuð í mynd Guðs.

15. október
„Hér er hvorki . . . karl né kona . . .“ Kristin trú og kynferði
Mál tengd kynferði og kyn-heigð hafa valdið átökum innan kirkjunnar. Þetta kvöld verður fjallað um þessa spennu og hún sett í samband við sjálfsmynd kirkjunnar og stefnumót hennar við samtímann.

17. október (laugardagur)
„Heilög, almenn kirkja?“ Sýn og skipulag
Fjallað verður um spenn-unna sem ríkir á milli kristni sem hugsjónar og kirkju sem félagslegrar hreyfingar.

Guðsþjónustan verður einnig til umfjöllunar og rætur hennar og uppbygging skoðuð. Hver er tilgangur guðsþjónustu í kristinni kirkju, hvaða boðskap flytjum við og er hann óhaggan-legur?

22. október
„Skapari jarðar.“ Kristin trú og stjórnmál
Fjallað verður um annars konar togstreitu sem ríkir á milli kirkju og samfélags, þar sem einkum er horft til hefða, valds og lýðræðis.

29. október
„Til endimarka jarðarinnar.“ Kristin trú í hnattvæddum heimi
Rætt verðu um hnattvæðing-una og framtíð kristinnar trúar. Einkum tvær áskoranir blasa þar við, annars vegar færist þyngdar-punktur kirkjunnar frá Vesturlöndum til annarra heimshluta, einkum í Afríku og S-Ameríku. Hins vegar skapa tengsl kristinnar við önnur trúarbrögð margvíslegan vanda.

Laufey Böðvarsdóttir, 8/9 2015

Bach tónleikar í Dómkirkjunni í kvöld kl. 20:30 og UNGDÓM Í safnaðarheimilinu 19:30-21. Hér er kveðja frá Óla og Sigga

Fermingarbörnin eru sérstaklega boðin velkomin á Kick-Off í kvöld 8. sept. Þar sem starfið verður keyrt í gang með miklum látum, leikjum og tilheyrandi. Þetta verður hörku stuð sem enginn unglingur ætti að láta fram hjá sér fara. Hlökkum til að sjá þau!
Stærsti viðburður vetrarins og eflaust sá skemmtilegasti er klárlega LALALALandsmót 2015 í Vestmannaeyjum 23.-25. október nk. Nánari upplýsingar hér: http://www.ungdom.me/landsmot-2015/
Fljótlega munum við draga verulega úr tíðni þessa fréttapósts og nota þess í stað Facebook-hópinn Ungdóm. Við biðjum foreldra, forráðamenn og börn að ganga í hópinn til þess að fylgjast með starfinu. Þangað verða líka settar myndir. Ungdóm á Facebook: https://www.facebook.com/groups/1457093351244220/
VIð höfum frískað upp á heimasíðu Ungdóm og gefið henni nýtt lén: www.ungdom.me -Endilega kíkið í heimsókn.
Þið finnið Ungdóm líka á Instagram undir heitinu ung0dom
Ps. Síðast en ekki síst viljum við minna á sunnudagaskólann alla sunnudaga kl. 11-12 á kirkjulofti Dómkirkjunnar. Ef fermingarbörnin eiga yngri systkini er tilvalið koma með þau þangað.
Kær kveðja,
Óli Jón og Siggi Jón

L

Laufey Böðvarsdóttir, 8/9 2015

Opna húsið haustið 2015

Dómkirkjan býður alla velkomna á Opna húsið í Safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a, á fimmtudögum, kl.13:30-15:30. Góðir gestir koma í heimsókn, boðið er upp á kaffi og með því, að ógleymdri skemmtilegri og nærandi samveru.
Sjáumst fimmtudaginn 17. september
17. september Vinafundur, kaffi og samvera.
24. september Haustferð, farið verður í Strandakirkju.
1. október Páll Bergþórsson
8. október Eyrún Ingadóttir
15. október Bingó
22. október Anna Sigríður Pálsdóttir
29. október Helga Guðrún Johnson
5. nóvember Karl Sigurbjörnsson
12. nóvember Páll Benediktsson
19. nóvember Guðrún Ágústsdóttir
26. nóvember Hrafnhildur Schram
3. desember Aðventusamvera

Laufey Böðvarsdóttir, 7/9 2015

Ljómandi góð messa og stutt pílagrímsganga.

Séra Elínborg Sturludóttir prédikaði og séra Sveinn Valgeirsson þjónaði fyrir altari. Messunni var útvarpað það má hlusta á hana á Sarpnum. http://www.ruv.is/…/r…/gudsthjonusta-i-domkirkjunni/20150906
Stutt pílagrímsganga var fyrir messu, gengið var frá Landakoti og komið við í Hólavallakirkjugarði, séra Elínborg leiddi gönguna, íhugunarefni á göngunni var líf mannsins frá vöggu til grafar. Nú er sunnudagaskólinn byrjaður og erum við lánsöm að Ólafur Jón og Sigurður Jón verða með hann í vetur.
Minni á haustferðina fimmtudaginn 24. september, þá verður farið í Strandakirkju. Fararstjóri verður Karl Sigurbjörnsson, biskup. Skráning og nánari upplýsingar hjá Laufeyju 898-9703 eða laufey@domkirkjan.is11988645_10153539504430396_2468331436995157493_n-1
11999547_10153539505045396_1405268398530849610_o

Laufey Böðvarsdóttir, 7/9 2015

Stutt pílagrímsganga fyrir messuna í fyrramálið!!!

Pílagrímsmessa og barnastarf sunnudaginn 6. september kl. 11
Pílagrímamessa í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 6. sept. kl. 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir prédikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Pétur Pétursson les bæn í messubyrjun, Karólína Hulda Guðmundsdóttir og Margrét Jónsdóttir Njarðvik lesa ritningarlestrana.
Sunnudagsskólinn vetrarins byrjar, barnastarfið er á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.
Fyrir messuna verður boðið upp á stutta pílagrímagöngu um nágrennið. Lagt verður af stað frá Landakotskirkju kl. 10. Gengið verður um Hofsvallagötu-Ásvallagötu-Hólavallagarð og til Dómkirkjunnar. Íhugunarefni á göngunni verður líf mannsins frá vöggu til grafar.
Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 5/9 2015

Sunnudagaskólinn byrjar sunnudaginn 6. september

Kæru foreldrar og forráðamenn!

Okkur langar að bjóða barn þitt/ykkar velkomið ásamt þér/ykkur í sunnudagaskólann.

Sunnudagaskóli Dómkirkjunnar er alla* sunnudaga frá og með 6. september 2015 til 24. apríl 2016. Stundin hefst kl. 11 á kirkjuloftinu. Samveran byggist á söngvum, bænum, Biblíusögum, leikjum og leikritum og lýkur kl. 12:00. Undir lok samverunnar fá börnin djús og kex og mynd til að lita auk lítils glaðnings. Fyrsta sunnudag hvers mánaðar er breytt út af venju og boðið uppá skemmtilegt föndur í stað hefðbundinnar samveru.

Við hvetjum þig/ykkur að láta sunnudagaskólann ekki fram hjá ykkur fara. Öll börn eru velkomin en samverurnar miðast við aldurshópinn 3 ára – 8 ára.

Hægt er að hafa samband og fá nánari upplýsingar um sunnudagaskólann í síma 520-9700 (sími Dómkirkjunnar). Þú/þið getið líka nálgast þær á http://www.domkirkjan.is/sunnudagaskoli/. Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að senda línu á domkirkjan@domkirkjan.is

*Sunnudagaskólinn fer í frí kringum jól og páska.

Laufey Böðvarsdóttir, 2/9 2015

Pílagrímsmessa og barnastarf sunnudaginn 6. september kl. 11

Pílagrímamessa í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 6. sept. kl. 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir prédikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar. Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Pétur Pétursson les bæn í messubyrjun, Karólína Hulda Guðmundsdóttir og Margrét Jónsdóttir Njarðvik lesa ritningarlestrana.
Sunnudagsskólinn vetrarins byrjar, barnastarfið er á kirkjuloftinu í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar Jóns.
Fyrir messuna verður boðið upp á stutta pílagrímagöngu um nágrennið. Lagt verður af stað frá Landakotskirkju kl. 10. Gengið verður um Hofsvallagötu-Ásvallagötu-Hólavallagarð og til Dómkirkjunnar. Íhugunarefni á göngunni verður líf mannsins frá vöggu til grafar.
Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/9 2015

Fríður hópur fólks í heimsókn í Dómkirkjunni, en myndgæðin mættu vera betri. Karl Sigurbjörnsson, biskup tók á móti hópnum og sagði sögu okkar fallegu Dómkirkju. Á næsta ári eru 220 ár síðan þessi fagri helgidómur var byggður. Minni á bæna-og kyrrðarstundina í dag í hádeginu, létt máltíð í Safnaðarheimilinu. Bach tónleikar í kvöld frá 20-30- 21:00, Ólafur Elíasson leikur a flygilinn. Verið hjartanlega velkomin.

IMG_3291

Laufey Böðvarsdóttir, 1/9 2015

Opna húsið í Safnaðarheimilinu byrjar fimmtudaginn 17. september.

Opna húsið í Safnaðarheimilinu byrjar fimmtudaginn 17. september. Það er frá kl. 13-30-15.30. Við fáum marga góða gesti til okkar í vetur.
Haustferðin verður farin fimmtudaginn 24. september. Dagskráin fram að jólum kemur inn á heimasíðuna nú í vikunni. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.

Laufey Böðvarsdóttir, 31/8 2015

Afmælishátíð Í Hallgrímskirkju

11053183_1015998545088619_4186852166734811810_o

Laufey Böðvarsdóttir, 29/8 2015

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

Tíðasöngur kl. 9. 15 og kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...