Dómkirkjan

 

Fjórði sunnudagur í aðventu

19. desember er fjórði sunnudagur í aðventu. Tvær messur verða í Dómkirkjunni. Kl. 11 er norsk messa og mun sr. Hjálmar Jónsson prédika. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Kl. 13.30 er síðan þýsk messa. Þar prédikar sr. Gunnar Kristjánsson prófastur Kjalnesinga, en sr. Jakob Roland prestur kaþólskra mun þjóna ásamt sr. Gunnari. Kári Þormar leikur á orgel en Vox populi undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar syngur.

Kl. 21 eru síðan jólatónleikar Kammerkórs Dómkirkjunnar,en kórinn syngur undir stjórn Kára Þormars ýmis jólalög.

Ástbjörn Egilsson, 15/12 2010

Orgeltónleikar

Orgeltónleikar í Dómkirkjunni í Reykjavík
Sunnudaginn 12.desember kl.17.00

Haukur Guðlaugsson fyrrum söngmálastjóri leikur orgelverk tengd aðventunni og eigin umritanir á verkum eftir Chopin og fleiri.
Haukur Guðlaugsson fæddist árið 1931. Hann lærði orgelleik í Þýskalandi hjá Försteman og á Ítalíu þar sem kennari hans var Fernando Germani. Haukur starfaði sem söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar árin 1974-2001. Í tíð Hauks jókst námskeiðahald á vegum söngmálastjóra til muna. Hann lagið sig einnig mikið fram við að styrkja kórastarf á landsbyggðinni. Þá var útgáfustarfsemi mjög öflug í hans tíð.
Tónleikarnir eru hluti af 25 ára afmæli orgels Dómkirkjunnar.
Aðgangur er ókeypis.

Ástbjörn Egilsson, 11/12 2010

Tvær messur og tónleikar

Sunnudaginn 12. desember sem er þriðji sunnudagur í aðventu, eru tvær messur í Dómkirkjunni. Kl. 11 messar sr. Þorvaldur Víðisson, Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Í messunni mun Haraldur Þrastarson nemandi í tónlistarskólanum leika einleik á básúnu. Að lokinni messu er messukaffi í safnaðarheimilinu.  Kl. 20 er síðan Æðruleysismessa en þar mun sr. Hjálmar Jónsson prédika en þau sr. Anna Sigríður Pálsdóttir og sr. Karl V. Matthíasson þjóna einnig.

Að venju sér Bræðrabandið um tónlistina en Helga Möller syngur. Kl. 17 heldur Haukur Guðlaugsson orgeltónleika í kirkjunni.

Ástbjörn Egilsson, 8/12 2010

Aðventuhugvekja

Hugvekja,flutt af Geir Tómassyni  á aðventukvöldi sunnudaginn 28.nóvember 2010

Hugvekja

Þín náðin,Drottinn nóg mér er

Því nýja veröld gafstu mér,

Í þinni birtu hún brosir öll

Í bláma sé ég lífsins fjöll.

Ágætu kirkjugestir – kæru vinir!

Þetta sem helst nú varast vann, varð þó að koma yfir hann. Mér varð hugsað til þessa orðtaks þegar það óvænta skeði sem kom mér, fjörgömlum sóknarnefndarmanni Dómkirkjunnar mjög á óvart að ég var beðinn að flytja hugvekju í kirkjunni, í tilefni 1 Sunnudagsins í Aðventu. Mér varð svarafátt og sagðist skyldu hugsa málið, enda allsennis óvanur til slíkra verka. En hér stend ég nú og bið ykkur að virða viljann fyrir verkið og hafa biðlund með mér, og því sem ég segi eða kann að láta ósagt í þessari hugvekju minni. Lesa áfram …

Ástbjörn Egilsson, 2/12 2010

Orgeltónleikar

-Dómkirkjuorgelið 25 ára 170 ára orgelsaga.

Miðvikudaginn 1. September kl.20.00 heldurKári þormar dómorganisti orgeltónleika í tilefni af 25 ára afmæli Schuke orgels Dómkirkjunnar í Reykjavík. Á efnisskránni er m.a. Tokkata og fúga í d-moll eftir J.S.Bach, Tokkata eftir Jón Nordal sem samin var í tilefni af vígslu orgelsins árið 1985 og skrifuð í minningu Páls Ísólfsonar. Þá á Páll Ísólfsson síðasta verkið á efnisskránni , Introduktion og passakaglia í f-moll. Á tónleikunum verður einnig frumflutt orgelverk eftir 25 ára gamalt tónskáld, Högna Egilsson.

Lesa áfram …

Ástbjörn Egilsson, 1/12 2010

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Sunnudagurinn 28. nóvember  er fyrsti sunnudagur í aðventu. Við byrjum með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 þar sem sr. Hjálmar Jónsson þjónar. Kl. 14 er sænsk guðsþjónusta. Dr. Pétur Pétursson flytur hugvekju, en sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Kl. 20 er svo Aðventukvöld Dómkirkjunnar. Geir Tómasson tannlæknir flytur hugvekju.

Sr. Anna Sigríður flytur ávarp og sr. Hjálmar lokabæn. Dómkórinn og dómorganisti Kári Þormar sjá um tónlistina. Einnig syngur skólakór Vesturbæjarskóla,stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Að loknu aðventukvöldinu er kaffi í safnaðarheimilinu í boði kirkjunefndar kvenna.

Ástbjörn Egilsson, 25/11 2010

Sunnudagurinn 21. nóvember

Sunnudaginn 21. nóvember sem er síðast sd. kirkjuársins  eru tvær messur í Dómkirkjunni. Kl.11 prédikar sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, organisti er Kári Þormar. Sönghópur úr Dómkórnum syngur. Einsöng syngur nemandi í Söngskólanum í Reykjavík Elfa Dröfn Stefánsdóttir. Að venju er barnastarfið á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Kl. 20 er æðruleysismessa og mun sr. Anna Sigríður einnig prédika þar. Sr. Hjálmar Jónsson og sr. Karl V. Matthíasson þjóna einnig. Um tónlistina sjá þeir bræður Hörður og Birgir Bragasynir.

Ástbjörn Egilsson, 17/11 2010

Sunnudagur 14. nóvember

Sunnudaginn 14. nóvember verða tvær messur í Dómkirkjunni. Kl. 11 prédikar sr. Þorvaldur Víðisson.

Kl. 14 fáum við heimsókn úr Húnaþingi. Sr. Sveinbjörn Einarsson messar. Kór Þingeyraklaustursprestakalls syngur kórstjóri er Sigrún Grímsdóttir Organisti er Sólveig S. Einarsdóttir. Við bjóðum þau öll hjartanlega velkomin.

Ástbjörn Egilsson, 11/11 2010

Tónleikar

Nýr Dómkór heldur tónleika

Fyrstu tónleikar nýs Dómkórs verða haldnir sunnudaginn 14. nóvember kl. 20 í Dómkirkjunni. Sérstakur gestur verður einn fremsti baritonsöngvari okkar Íslendinga og fyrrum Dómkórsfélagi, Hrólfur Sæmundsson. Hann hefur nýverið slegið í gegn í stórum hlutverkum í Þýskalandi, nú síðast í titilhlutverkinu í Évgení Onegin eftir Tjækovskí. Lesa áfram …

Ástbjörn Egilsson, 11/11 2010

Sunnudagur 7. nóvember-Allra heilagra messa

Helgistundir  sunnudagsins eru tvær sú fyrri, messa hefst  kl. 11. Þá mun sr. Hjálmar Jónsson predika og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar dómorganisti. Að lokinni messu er kaffi í safnaðarheimilinu.
Kl. 20 er minningarstund um látna ástvini. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur undir stjórn Kára Þormar organista. Prestar dómkirkjunnar sr. Hjálmar og sr. Anna Sigríður eru með upplestur og fyrirbæn.

Ástbjörn Egilsson, 4/11 2010

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...