Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar stendur fyrir prjónakvöldi kl. 19 í safnaðarheimilinu, þriðjudagskvöldið 26. nóvember, súpa, kaffi og smákökur.
Gestur okkar verður Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra. Hann mun lesa úr nýútkominni bók sinni. Allir velkomnir, karlar, konur, ungir sem aldnir. Það þarf ekki að hafa neitt á prjónunum, bara mæta, því maður er manns gaman ;-)
Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 25/11 2013
Bíóferð Ungdóm
Næsta sunnudag ætlar Ungdóm að skella sér í bíó! Sýningin sem orðið hefur fyrir valinu er Hunger Games 2, kl. 14 í Háskólabíó.
Öll fermingarbörnin eru jafnframt hvött til þess að mæta í messu/ sunnudagaskóla kl.11. Að svo búnu (kl.12:10) verður þeim boðið upp á léttan hádegisverð í safnaðarheimilinu. Fram að brottför verður undirbúin helgileikur fermingarbarna sem sýndur verður í fjölskylduguðþjónustu þann 8. desember. Myndin er búin um kl. 16:40. og þá er dagskrá lokið. Engin Ungdóm-samvera verður á mánudagskvöld þar sem Hagaskóli er að keppa í Skrekk.
Kær kveðja
Óli Jón og Siggi Jón
Laufey Böðvarsdóttir, 21/11 2013
Messa kl. 11, sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar.
Ung stúlka, Erla Hafrún Guðjónsdóttir leikur á fiðlu. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar.
Kolaportsmessa kl. 14, sr. Hjálmar Jónsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Þorvaldur Halldórsson og Margrét sjá um tónlistina.
Laufey Böðvarsdóttir, 21/11 2013
Guðfinna Ragnarsdóttir kemur í dag og kynnir okkur fyrir ættfræðinni. Forfaðir Guðfinnu var Brandur Bjarnhéðinsson lögsagnari, sem gaf tvo altarisstjaka úr messing til Víkurkirkju fyrir 1915. Það er elstu gripirnir sem Dómkirkjan á. Einnig var langömmubróðir Guðfinnu, Eiríkur hringjari við Dómkirkjuna.
Laufey Böðvarsdóttir, 21/11 2013
Það verður án efa kátt á hjalla á fimmtudaginn þegar Guðfinna Ragnarsdóttir kemur í heimsókn. Guðfinna er fyrrverandi kennari við Menntaskólann í Reykjavík og mikil áhugamanneskja um ættfræði.
Laufey Böðvarsdóttir, 18/11 2013
Minni á fyrirbænastundir í hádeginu alla þriðjudaga kl. 12:10 -12:30. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu á eftir.
Laufey Böðvarsdóttir, 18/11 2013
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar ætlar að hafa prjónakaffi í safnaðarheimili Dómkirkjunnar þriðjudagskvöldið 26. nóvember kl. 19:00. Tilvalið tækifæri til að eiga góða stund saman. Nánar auglýst síðar.
Laufey Böðvarsdóttir, 18/11 2013
Æðruleysismessa í kvöld 17. nóvember kl. 20, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og sr. Karl V. Matthíason þjónar. Berglind Björk Jónasdóttir syngur og Ástvaldur Traustason leikur á flygilinn.
Laufey Böðvarsdóttir, 17/11 2013
Messa kl.11, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Sunnudagaskóli á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón Ólafs Jóns og Sigurðar. Dómkórinn syngur, organisti Kári Þormar. Æðruleysismessa á sunnudagskvöldið kl. 20, Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar, sr. Karl V. Matthíasson þjónar, Berglind Björk Jónasdóttir syngur og Ástvaldur Traustason sér um tónlistina. Verið hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 14/11 2013
Séra Þórir Stephensen verður gestur okkar í opna húsinu fimmtudaginn 14. nóvember. Opna húsið er frá 13:30-15:30 í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Hvetjum alla til að koma og eiga notalega stund saman, góðar veitingar á vægu verði. Fimmtudaginn 21. nóvember kemur Guðfinna Ragnarsdóttir, fyrrverandi menntaskólakennari og 28. nóvember verður bingó sem Ástbjörn okkar stjórnar.
Laufey Böðvarsdóttir, 12/11 2013