Þri-mið-og fimmtudaga er tíðasöngur með sr. Sveini kl. 9.15 einnig er tíðasöngur kl. 17.00 á fimmtudögum.
Á morgun þriðjudag er bæna-og kyrrðarstund í hádeginu og létt máltíð eftir stundina. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar öll þriðjudagskvöld kl. 20.00-20.30.
Örganga með séra Elínborgu klukkan 18.00 á miðvikudaginn.
Opna húsið í safnaðarheimilinu á fimmtudaginn kl. 13.00-14.30. Séra Elínborg verður með erindi, kaffiveitingar og gott samfélag.
Verið hjartanlega velkomin í safnaðarstarf Dómkirkjunnar.
Laufey Böðvarsdóttir, 26/2 2024
Sigurrós er nýbúin að skrifa bók um ömmu sína Katrínu Pálsdóttur, sem missti eiginmann sinn árið 1925 frá níu börnum og vilji yfirvalda stóð til þess að koma börnunum fyrir sem hreppsómögum austur í Landsveit. Eftir að hafa unnið þá orrustu að halda fjölskyldunni varð Katrín einörð baráttukona fyrir réttindum og kjörum mæðra sem stóðu í svipuðum sporum.
Sigurrós Þorgrímsdóttir er fyrrverandi bæjarfulltrúi og alþingismaður hefur um árabil unnið úr gögnum Katrínar ömmu sinnar. Sjáumst í Opna húsinu á fimmtudaginn klukkan 13.00-14.30. Kaffiveitingar og gott samfélag.
Laufey Böðvarsdóttir, 11/2 2024