Dómkirkjan í Reykjavík hefur verið vettvangur mikilvægra atburða í lífi íslensku þjóðarinnar, einstaklinga, fjölskyldna og samfélags. Við þingsetningar ganga alþingismenn til Dómkirkjunnar og hlýða á guðsþjónustu og eins við embættistöku forseta Íslands. Dómkirkjan er kirkja biskups Íslands, þar sem hann vinnur flest embættisverk sín og jafnframt er Dómkirkjan sóknarkirkja, áður fyrr allra Reykvíkinga en nú gamla Vesturbæjarins og næstu hverfa til austurs.
Starfssvið:
• Hljóðfæraleikur við messur og annað helgihald bæði safnaðarins og biskups, þ.m.t. prestsvígslur
• Umsjón með kórastarfi Dómkirkjunnar
• Stuðningur við annað safnaðarstarf Dómkirkjunnar
Hæfniskröfur: • Kantorspróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólapróf í kirkjutónlist
• Reynsla af flutningi tónlistar við helgihald • Góð reynsla af kórstjórn
• Fagleg framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknum skal senda rafrænt til eg@egillarnason.is og sveinn@domkirkjan.is
Með umsókn þarf að skila: – Ferilskrá – Prófskírteini – Meðmælum Umsóknarfrestur er til 1. mars 2023.
Laufey Böðvarsdóttir, 27/2 2023
Dagskráin:
Þriðjudagur 28. febrúar.
Tíðasöngur kl. 9. 15
Bæna-og kyrrðarstund kl. 12.00 og létt máltíð eftir stundina. Gott að koma í kirkjuna og eiga dýrmæta stund frá amstri hverdagsins.
Bach tónleikar Ólafs Elíassonar kl. 20.-20.30.
Miðvikudagur 1. mars
Tíðasöngur kl. 9. 15 með séra Sveini.
Örganga með séra Elínborgu kl. 18.00. hefst með stuttri hugvekju í kirkjunni.
Tíðasöngur kl. 9. 15.
Opna húsið hefst í Dómkirkjunni kl. 13.00
Gunnar Kvaran í sellóleikari flytur eitt af öndvegisverkun meistara Bachs fyrir einleiksselló. Síðan flytur Gunnar hugvekju og loks mun Gunnar leika Air ásamt Guðmundi Sigurðssyni organista. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Við fáum góða gesti frá Áskirkju og Laugarneskirkju.
Tíðasöngur kl. 17.00 með séra Sveini.
Sunnudaginn 5. mars Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar.
Messa kl. 11.00 Séra Sveinn Valgeirsson, séra Elínborg Sturludóttir og Dómkórinn.
Verið hjartanlega velkomin!
Laufey Böðvarsdóttir, 27/2 2023
5. mars kl.11.00 Æskulýðsdagurinn. Séra Elínborg og séra Sveinn.
12. mars kl.11.00 sr. Elínborg Sturludóttur
19. mars kl. 11.00 sr. Sveinn Valgeirsson
26. mars kl.11.00 sr. Sveinn Valgeirsson
2. apríl kl.11.00 pálmasunnudagur ferming séra Elínborg og séra Sveinn
6. apríl kl.11. skírdagur ferming séra Elínborg og séra Sveinn
6. apríl kl. 20.00 séra Elínborg og séra Sveinn
7. apríl föstudagurinn langi kl.11.00 sr. Elínborg Sturludóttir
Páskadagur kl.8.00
Páskadagur kl.11.00
Annar í páskum kl.11.00 sr. Elínborg Sturludóttir
Laufey Böðvarsdóttir, 27/2 2023
Tilhlökkun að fá Gunnar Kvaran í Dómkirkjuna eða eins og Gunnar segir sjálfur: „ Það er mér mikið ánægjuefni að fá að flytja eitt af öndvegisverkum meistara Bachs fyrir einleiksselló á tónleikum í Dómkirkjunni fimmtudaginn 2 mars kl. 13. Auk einleiksverksins mun ég flytja stutta hugleiðingu og þessari stund mun ljúka á því að ég leik hið fræga lag Bachs,Air, ásamt Guðmundi Sigurðssyni organista Dómkirkjunnar. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir“ Eftir stundina er veislukaffi í safnaðarheimilinu, Lækjargötu 14a. Við fáum góða gesti frá Áskirkju og Laugarneskirkju. Hlökkum til að sjá ykkur og verið hjartanlega velkomin!
Laufey Böðvarsdóttir, 23/2 2023
Sterkt helgihald sem markar upphaf föstunnar
Laufey Böðvarsdóttir, 20/2 2023
Nýr tónleikadagur verður tilkynntur um leið og hægt er.
Laufey Böðvarsdóttir, 17/2 2023
Dómkirkjan í Reykjavík hefur verið vettvangur mikilvægra atburða í lífi íslensku þjóðarinnar, einstaklinga, fjölskyldna og samfélags. Við þingsetningar ganga alþingismenn til Dómkirkjunnar og hlýða á guðsþjónustu og eins við embættistöku forseta Íslands. Dómkirkjan er kirkja biskups Íslands, þar sem hann vinnur flest embættisverk sín og jafnframt er Dómkirkjan sóknarkirkja, áður fyrr allra Reykvíkinga en nú gamla Vesturbæjarins og næstu hverfa til austurs.
Starfssvið:
• Hljóðfæraleikur við messur og annað helgihald bæði safnaðarins og biskups, þ.m.t. prestsvígslur
• Umsjón með kórastarfi Dómkirkjunnar
• Stuðningur við annað safnaðarstarf Dómkirkjunnar
Hæfniskröfur: • Kantorspróf frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar eða háskólapróf í kirkjutónlist
• Reynsla af flutningi tónlistar við helgihald • Góð reynsla af kórstjórn
• Fagleg framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknum skal senda rafrænt til eg@egillarnason.is og sveinn@domkirkjan.is
Með umsókn þarf að skila: – Ferilskrá – Prófskírteini – Meðmælum Umsóknarfrestur er til 1. mars 2023.
Staðan er veitt frá 1. júlí 2023 eða eftir samkomulagi. Um er að ræða fullt starf. Launakjör eru skv. kjarasamningi Félags íslenskra organista (FÍÓ Organistadeildar FÍH) og launanefndar Þjóðkirkjunnar.
Frekari upplýsngar um starfið veita Einar S. Gottskálksson formaður sóknarnenfndar í sími 821 1400, eg@egillarnason.is og Sveinn Valgeirsson sóknarprestur í síma 862 5467, sveinn@domkirkjan.is.
Laufey Böðvarsdóttir, 13/2 2023