Dómkirkjan

 

https://www.ruv.is/…/dagskra/ras1/2024-08-01/5392122

Bein Útsending úr Dómkirkjunni og Alþingishúsinu frá embættistöku 7. forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur. Til hamingju Halla Tómasdóttir. Guð blessi þig í lífi og starfi.

Falleg helgistund í Dómkirkjunni. Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir prédikaði, séra Sveinn Valgeirsson, Dómkórinn, Guðmundur Sigurðsson dómorganisti  Sigríður Thorlacius, félagar úr Skólakór Kársness sungu undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.

Laufey Böðvarsdóttir, 2/8 2024

Blásarakvintettinn Vindtro frá Kaupmannahöfn

Blásarakvintettinn Vindtro hefur verið starfræktur frá árinu 2020 en meðlimirnir kynntust við nám við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn.
Þau halda af stað í tónleikaferðalag um Danmörku, Færeyjar og Ísland í lok ágúst, og halda sína seinustu tónleika á ferðalaginu í Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 30. ágúst kl. 18:00.
Þau munu flytja fjölbreytta efnisskrá samansetta af klassískum verkum með þjóðlegum innblæstri frá Danmörku, Færeyjum og Íslandi.
Almennt miðaverð 2500 kr. / 1500 kr. fyrir stúdenta og eldri borgara. Hægt að greiða með Aur, peningum, eða með því að leggja inn á reikning.
Vindtro er ungur, alþjóðlegur tréblásarakvintett sem var stofnaður í Kaupmannahöfn vorið 2020. Meðlmiðir kvintettsins eru hin japanska Erika Tani, óbó, hin danska Julie Norén Solevad, horn, hin íslenska Kristín Ýr Jónsdóttir, flauta, og hin norsku Kamilla Steinkjær Bentzen, klarínetta, og Peder Ravn Jensen, fagott. Þau kynntust í Konunglega Danska Tónlistarháskólanum og hafa hlotið leiðsögn þaðan frá Próf. Max Artved.
Kvintettinn var valinn til að taka þátt í P2 Kammertónlistarkeppninni á vegum danska ríkisútvarpsins og Alþjóðlegu Carl Nielsen Kammertónlistarkeppninni (2023), og unnu fyrstu verðlaun í Alþjóðlegu Mozart/Salzburg Kammertónlistarkeppninni Tokyo (2023) og Nordic Wind Kammertónlistarkeppninni (2021). Vindtro hefur komið fram á ýmsum hátíðum í Skandinavíu, má þar nefna Festspillene í Bergen, Noregi, Sænsku blásaratónlistarhátíðina í Linköping og Rued Langgaard hátíðina í Ribe, Danmörku. Þau hlutu þann mikla heiður að vera ein af mótttakendum hins virta Léonie Sonnings Talentpris í maí 2023.
Allir meðlimir kvintettsins eru virkir í norrænu tónlistarsenunni og koma reglulega fram með hinum ýmsu sinfóníuhljómsveitum. Má þar nefna Dönsku Útvarpshljómsveitina, Odense Sinfóníuhljómsveitina, Kaupmannahafnar Fílharmóníuna, Konunglegu dönsku Óperuhljómsveitina, Bergen Fílharmónínuna og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Laufey Böðvarsdóttir, 1/8 2024

Sunnudaginn 4. ágúst er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Pétur Nót Stefánsson leikur á orgelið og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Verið hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 31/7 2024

Bach tónleikar Ólafs Elíassonar falla niður í dag, 30 júlí

Laufey Böðvarsdóttir, 30/7 2024

Sunnudaginn 28. júlí klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Guðmundur Sigurðsson leikur á orgelið og félagar úr Dómkórnum leiða safnaðarsönginn.

Laufey Böðvarsdóttir, 27/7 2024

Velkomin til messu 21. júlí klukkan 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir, Pétur Nói Stefánsson og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn.

Laufey Böðvarsdóttir, 17/7 2024

Messa sunnudaginn 14. júlí klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Pétur Nói Stefánsson og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Verið velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 11/7 2024

Bæna-og kyrrðarstund 9. júlí klukkan 12.00. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Minnum líka á Bach tónleika Ólafs Elíassonar öll þriðjudagskvöld kl. 20.00-20.30. Verið velkomin í Dómkirkjuna.

Laufey Böðvarsdóttir, 9/7 2024

Strengjakvartettinn Eyja og SPÍRA verða með tónleika í Dómkirkjunni fimmtudaginn 11. júní klukkan 16:30. Aðgangur er ókeypis. Strengjakvartettinn Eyja er skipaður fiðluleikurunum Söru Karín Kristinsdóttur og Elísabetu Önnu Dudziak, víóluleikaranum Diljá Finnsdóttur og sellóleikaranum Ágústu Bergrós Jakobsdóttur. Þær kynntust við nám í tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Í sumar mun Strengjakvartettinn Eyja leika bæði þjóðlega tónlist og tónlist innblásna af þjóðlögum, og lífga þannig upp á fallega sumardaga í Reykjavíkurborg. Á tónleikunum verður flutt þjóðleg dagskrá, bæði íslensk þjóðlög og tónverk innblásin af þjóðlegri tónlist. SPÍRA er tónlistarverkefni Hafrúnar Birnu Björnsdóttur, sem lauk B.Mus í víóluleik frá Listaháskóla Íslands nú í vor. Í sumar mun Spíra kynna víóluna fyrir almenningi með flutningi á frumsamdri spunatónlist. Við flutninginn notast hún við looper pedal sem gerir henni kleift að vefa saman ólík hljóð víólunnar.

11. júlí 11

Laufey Böðvarsdóttir, 8/7 2024

Messa klukkan 11.00 sunnudaginn 7. júlí.Séra Sveinn Valgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Pétur Nói Stefánsson leikur á orgelið og félagar úr Dómkórnum leiða safnaðarsönginn. Verið velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 3/7 2024

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

Fimmtudagur

- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur

Dagskrá ...