Tónleikar 5. júní klukkan 18.00. Við bjóðum ykkur velkomin á stutta tónleika í Dómkirkjunni þar sem nýstofnaði sönghópurinn Fönn og kvartettinn Barbari munu skiptast á að syngja nokkur lög í barbershop stíl. Frítt inn! Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-04T08:29:52+00:0004/06/2026|Fréttir|
Sönghópurinn Marteinnn er með tónleika sunnudaginn 7. júní kl. 20.00. Þýðingar Heimis Pálssonar fyrir Dómkórinn og félaga hans í gegnum tíðina skipta tugum. Sönghópur Marteins þakkar fyrir sig með söngvastund í Dómkirkjunni þar sem flutt verða lög sem eiga það sameiginlegt að hafa fengið íslenskan texta frá Heimi Pálssyni. Kórnum stjórna kórfélagarnir Kristín Valsdóttir, Sigmundur Sigurðarson og Þórunn Björnsdóttir. Meðleikarar: Ása Briem, píanó og Matti Kallio, píanó og harmonikka. Aðgangur er ókeypis. Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-04T08:33:49+00:0003/06/2026|Fréttir|
Pálmi Sigurhjartarson er með tónleika fimmtudaginn 4. júní kl. 20.00. Miðasala á tix.is Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-04T08:32:07+00:0003/06/2026|Fréttir|
Sönghópurinn Marteinnn er með tónleika sunnudaginn 7. júní kl. 20.00. Þýðingar Heimis Pálssonar fyrir Dómkórinn og félaga hans í gegnum tíðina skipta tugum. Sönghópur Marteins þakkar fyrir sig með söngvastund í Dómkirkjunni þar sem flutt verða lög sem eiga það sameiginlegt að hafa fengið íslenskan texta frá Heimi Pálssyni. Kórnum stjórna kórfélagarnir Kristín Valsdóttir, Sigmundur Sigurðarson og Þórunn Björnsdóttir. Meðleikarar: Ása Briem, píanó og Matti Kallio, píanó og harmonikka. Aðgangur er ókeypis. Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-03T13:30:41+00:0003/06/2026|Fréttir|
Það er sjómannadagsmessa í Dómkirkjunni á sjómannadaginn klukkan. 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson og Dómkórinn í Reykjavík. Magnús Már Björnsson syngur einsöng. Aðalsteinn Friðriksson og Níels Bjarki Finsen lesa ritningarlestra. Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-03T10:06:58+00:0003/06/2026|Fréttir|
Kæru vinir, í sumar verða bæna-og kyrrðarstundir alla þriðjudaga kl. 12.00 og hádegisverður og gott samfélag í safnaðarheimilinu. Alla sunnudaga eru messur klukkan 11.00 og Bach tónleikar Ólafs Elíassonar öll þriðjudagskvöld kl. 20.00-20.30. Sjáumst í Dómkirkjunni! Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-01T20:23:08+00:0001/06/2026|Fréttir|
Bæna-og kyrrðarstund í dag, þriðjudag klukkan 12.00. Samvera og léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Þriðjudags bænastundirnar eru allt árið um kring. Í kvöld er Ólafur Elíasson með Bach tónleika klukkan 20.00-20.30. 31.maí er messa kl. 11.00 séra Jón Ásgeir þjónar, Matthías og Dómkórinn. Verið velkomin! Laufey Böðvarsdóttir|2026-06-01T20:24:59+00:0026/05/2026|Fréttir|
Á annan í hvítasunnu er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson dómorganisti og Dómkórinn. Verið hjartanlega velkomin! Frítt í bílastæðin. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-24T16:54:26+00:0024/05/2026|Fréttir|
„Vinir Ágústu vilja heiðra minningu hennar og halda nafni hennar á lofti með þessum Biblíugjöfum. Öll börn sem fermast í Dómkirkjunni hafa fengið Biblíu frá sjóðnum að gjöf frá því Ágústusjóður var stofnaður þegar Ágústa varð áttræð árið 2019. Hún vildi engar gjafir í tilefni stórafmælisins en Karl Sigurbjörnsson stakk upp á að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni og vinir hennar tóku vel í það. Þetta gladdi hana mikið og hún gaf sjálf í sjóðinn. Kærleikur hennar til Guðs orðs leyndi sér ekki og einlægur áhugi hennar að efla og styrkja trúna í samfélaginu, ekki síst miðlun trúarinnar til hinna ungu. Ágústa þekkti vel orð frelsarans um að sælla er að gefa en þiggja, og hún lifði samkvæmt því.“ Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-24T14:25:49+00:0024/05/2026|Fréttir|
Vorferðin verður farin suður með sjó fimmtudaginn 28. maí. Lagt verður af stað klukkan 10.00 Nánari upplýsingar hjá Laufeyju í síma 898-9703. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-21T12:32:11+00:0021/05/2026|Fréttir|