Bæna-og kyrrðarstund í dag, þriðjudag klukkan 12.00. Samvera og léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Þriðjudags bænastundirnar eru allt árið um kring. Í kvöld er Ólafur Elíasson með Bach tónleika klukkan 20.00-20.30 Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-26T11:48:32+00:0026/05/2026|Fréttir|
Á annan í hvítasunnu er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson dómorganisti og Dómkórinn. Verið hjartanlega velkomin! Frítt í bílastæðin. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-24T16:54:26+00:0024/05/2026|Fréttir|
„Vinir Ágústu vilja heiðra minningu hennar og halda nafni hennar á lofti með þessum Biblíugjöfum. Öll börn sem fermast í Dómkirkjunni hafa fengið Biblíu frá sjóðnum að gjöf frá því Ágústusjóður var stofnaður þegar Ágústa varð áttræð árið 2019. Hún vildi engar gjafir í tilefni stórafmælisins en Karl Sigurbjörnsson stakk upp á að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni og vinir hennar tóku vel í það. Þetta gladdi hana mikið og hún gaf sjálf í sjóðinn. Kærleikur hennar til Guðs orðs leyndi sér ekki og einlægur áhugi hennar að efla og styrkja trúna í samfélaginu, ekki síst miðlun trúarinnar til hinna ungu. Ágústa þekkti vel orð frelsarans um að sælla er að gefa en þiggja, og hún lifði samkvæmt því.“ Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-24T14:25:49+00:0024/05/2026|Fréttir|
Vorferðin verður farin suður með sjó fimmtudaginn 28. maí. Lagt verður af stað klukkan 10.00 Nánari upplýsingar hjá Laufeyju í síma 898-9703. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-21T12:32:11+00:0021/05/2026|Fréttir|
Á hvítasunnudag klukkan 11.00 er fermingarmessa í Dómkirkjunni. Guð blessi fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra. Dómkórinn í Reykjavík leiðir safnaðarsönginn, Matthías dómorganisti og sr. Sveinn og Elínborg þjóna. Karl Sigurbjörnsson skrifaði þessi góðu orð um fermingun: Fermingin hefur um aldir verið mikilvægur þáttur í trúarlífi og samfélagi okkar. Fyrrum fylgdu ýmis borgaraleg réttindi fermingunni en það er löngu liðin tíð. Flestum finnst samt sem áður að fermingin sé ómissandi hátíð sem marki skil bernsku og unglingsára. Fermingin er reyndar eina hátíðin í okkar samfélagi sem snýst um unglinginn sérstaklega. Fjölskyldan og vinir fagna með og yfir fermingarbarninu, þakkar þá gæfu og gjöf sem það er og hefur verið og treysta jafnframt heit sín að styðja það og leiða á þroskabraut og gæfuvegi. Þakklætið og kærleikurinn sem umvefur barnið á sér dýpri vídd og skýrskotun, vegna þess að það er þökk og gleði yfir Lífinu, sem við þiggjum úr hendi Guðs. Í þeirri hendi erum við aldrei ein. Fermingin er áminning um og staðfesting þess að unglingurinn tilheyrir samfélagi sem er meir en blóðbönd og vinatengsl, samfélag kristninnar sem umlykur fortíð og framtíð í óslitinni keðju kynslóðanna í þúsund ár í landinu okkar. Það er sterk keðja, tengd saman af bæn og kærleika, trú og von. Orðið ferming merkir staðfesting. Fermingin er staðfesting þess að viðkomandi er skírður og vill játast því og staðfesting kirkjunnar á því að hinn skírði hafi hlotið uppfræðslu í grundvallaratriðum trúarinnar. Fermingarbarnið játar trúna, þiggur fyrirbæn og blessun til áframhaldandi lífsferðar sem samverkamaður Guðs í heiminum. Guð blessi fermingarbörnin öll og fjölskyldur þeirra á mikilvægum tímamótum. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-19T10:57:08+00:0019/05/2026|Fréttir|
Góð vika framundan og fallegur sólskindagur í dag. Laudes- morgunsöngur kl. 9. 15 á morgun, þriðjudag. Bæna- og kyrrðarstund kl. 12.00. Mælum með að gefa sér stund frá amstri dagsins og njóta í helgidómnum. Léttur hádegisverður og gott samfélag í safnaðarheimilinu eftir stundina. Á morgun ætlar Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar að borða saman og fara síðan á tónleika Ólafs Elíassonar kl. 20.00 í Dómkirkjunni. Skráning í matinn hjá formanni kirkjunefndar Eddu Einarsdóttur edda@ark.is Öll þriðjudagskvöld klukkan 20.00-20.30 eru Bach tónleikar. Ólafur Elíasson leikur prelódíur og fúgur á nýja Dómkirkjuflygilinn. Á miðvikudaginn er morgunsöngur kl. 9.15. Velkomin! Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-18T08:41:53+00:0018/05/2026|Fréttir|
Sunnudaginn 17. maí er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson og Dómkórinn. 17. maí er þjóðhátíðardagur norðmanna og er norsk guðþjónusta kl. 14.00. Séra Þorvaldur Víðisson, Kári Þormar organisti og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Verið hjartanlega velkomin til kirkju á sunnudaginn. Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-13T10:26:45+00:0013/05/2026|Fréttir|
Á uppstigningardag er messa klukkan 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir, Matthías Harðarson og Dómkórinn í Reykjavík. Uppstigningardagur er fimmtudagur 40 dögum eftir páska. Hann er helgidagur kristinna til minningar um himnaför Jesú. Á ári aldraðra 1982 var uppstigningardagurinn valinn kirkjudagur aldraðra á Íslandi. Verið hjartanlega velkomin! Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-13T10:26:09+00:0013/05/2026|Fréttir|
Kæru vinir, séra Elínborg flytur morgunbæn og orð dagsins í dag og næstu daga. Njótið vel https://www.ruv.is/…/morgunbaen-og-ord…/25329/bme3og Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-11T07:46:29+00:0011/05/2026|Fréttir|
Berglind Ásgeirsdóttir, iðjuþjálfi kemur í Opna húsið í safnaðarheimilinu á þriðjudaginn og segir okkur frá því merkilega starfi sem unnið er i Ljósinu. Þar fer frá endurhæfing krabbameinsgreindra. Byrjum í kirkjunni með góðri bæna-og kyrrðarstund klukkan 12.00. Förum síðan í safnaðrheimilið og fáum þar léttan hádegisverð og síðan mun Berglind tala um starfið í Ljósinu. Verið velkomin! Laufey Böðvarsdóttir|2026-05-10T11:26:24+00:0010/05/2026|Fréttir|