Falleg guðþjónusta í morgun og fagnaðarfundir þegar messugestir hittumst aftur eftir langt samkomubann. Séra Elínborg prédikaði, sr. Jakob Ágúst las ritningarlestrana, Dómkórinn söng, organisti var Kári Þormar og Pétur Nói spilaði for-og eftirspil á orgelið. Í kvöld klukkan 20.00 er æðruleysismessa. Í guðþjónustunni í morgun var sungin þessi fallegi sálmur eftir Karl Sigurbjörnsson, biskup. Nú skrúða grænum skrýðist fold og skæru augun ljóma er fagna blómin frelsi’ úr mold og frosts og vetrar dróma. Nú barna raddir blíðar tjá að birtan sigrað hefur og allt í náð umvefur. Í laufi fuglinn, lamb í hjörð og lóa frjáls í heiði þá lofgjörð inna lífs sem jörð á löngum vetri þreyði. Af gleði óma götur, torg og gleði birtir sanna öll önn og iðja manna. Þú Guð, sem sumar gefur jörð og gleði barna þinna, gef allri þinni eignarhjörð þá elsku’ og gleði’ að finna og lúta þér í lotning, trú, að lífi öllu hlúa, sem systkin saman búa.
Laufey Böðvarsdóttir, 18/5 2020