laufey

laufey

About Laufey Böðvarsdóttir

This author has not yet filled in any details.
So far Laufey Böðvarsdóttir has created 43 blog entries.

Sönghópurinn Marteinnn er með tónleika sunnudaginn 7. júní kl. 20.00. Þýðingar Heimis Pálssonar fyrir Dómkórinn og félaga hans í gegnum tíðina skipta tugum. Sönghópur Marteins þakkar fyrir sig með söngvastund í Dómkirkjunni þar sem flutt verða lög sem eiga það sameiginlegt að hafa fengið íslenskan texta frá Heimi Pálssyni. Kórnum stjórna kórfélagarnir Kristín Valsdóttir, Sigmundur Sigurðarson og Þórunn Björnsdóttir. Meðleikarar: Ása Briem, píanó og Matti Kallio, píanó og harmonikka. Aðgangur er ókeypis.

|2026-06-04T08:33:49+00:0003/06/2026|Fréttir|

|2026-06-03T13:30:41+00:0003/06/2026|Fréttir|

„Vinir Ágústu vilja heiðra minningu hennar og halda nafni hennar á lofti með þessum Biblíugjöfum. Öll börn sem fermast í Dómkirkjunni hafa fengið Biblíu frá sjóðnum að gjöf frá því Ágústusjóður var stofnaður þegar Ágústa varð áttræð árið 2019. Hún vildi engar gjafir í tilefni stórafmælisins en Karl Sigurbjörnsson stakk upp á að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni og vinir hennar tóku vel í það. Þetta gladdi hana mikið og hún gaf sjálf í sjóðinn. Kærleikur hennar til Guðs orðs leyndi sér ekki og einlægur áhugi hennar að efla og styrkja trúna í samfélaginu, ekki síst miðlun trúarinnar til hinna ungu. Ágústa þekkti vel orð frelsarans um að sælla er að gefa en þiggja, og hún lifði samkvæmt því.“

|2026-05-24T14:25:49+00:0024/05/2026|Fréttir|