Prestsvígsla 14. júlí
Næsta sunnudag 14. júlí vígir biskup Íslands tvo kandídata til prestsþjónustu. Cand. theol. María Guðrún Gunnlaugsdóttir verður vígð til þjónustu í Patreksfjarðarprestakalli. Cand. theol. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn verður vígð til þjónustu í Kvennakirkjunni.
Vígsluvottar verða: Sr. Gunnlaugur Garðarson sem lýsir vígslu, sr. Auður Eir Vilhjálmsdótti , sr. Leifur Ragnar Jónsson ,sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Sr. Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 10/7 2013 kl. 8.39