Sunnudagur 4. nóvember
Næsti sunnudagur 4. nóvember er samkvæmt kirkjuárinu 22. sd. eftir þrenningarhátíð en jafnframt allra heilagra messa en þann dag minnist kirkjan sérstaklega þeirra sem fallnir eru frá . Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Í lok athafnar gefst kirkjugestum kostur á að tendra ljós til minningar um látna ástvini. Sunnudagskólinn er á kirkjuloftinu að venju
Ástbjörn Egilsson, 1/11 2012 kl. 13.16