Sunnudagur í föstuinngang 15. febrúar, skemmtilegur sunnudagur framundan í Dómkirkjunni.
Í messunni á sumnudaginn kl. 11:00 mun séra Hjálmar Jónsson þjóna. Katla Kristjánsdóttir les upphafsbænina, en Katla mun fermast hér í Dómkirkjunni á skírdag. Ritningarlestrana lesa þau Geir R. Tómasson og Anna Ýr Böðvarsdóttir. Dómkórinn syngur og organisti er Kári Þormar. Fræðandi og skemmtilegt barnastarf á kirkjuloftinu að venju í umsjón þeirra Óla Jóns og Sigurðar Jóns. Messukaffi í safnaðarheimilinu.
Æðruleysismessa er kl. 20:00 í Dómkirkjunni, ljúf stund með góðu fólki.
Hjartanlega velkomin til okkar.
Laufey Böðvarsdóttir, 11/2 2015 kl. 13.40