Það var góður hópur sem kom til messu í gær. Eftir messu var farið í safnaðarheimilið þar sem veisluborð beið kirkjugesta. Það eru nokkrar góðar konur sem baka og sjá um messukaffið, allt unnið í sjálfboðastarfi. Þær eiga þakkir skildar, ekki eingöngu fyrir góðar veitingar heldur einnig alúðlegar og góðar móttökur þegar kirkjugesti ber að garði.
3. febrúar 2014 kl. 13.43 flokkað undir .