Dómkirkjan

 

Takið eftir að þrátt fyrir lokanir vegna leiðtogafundarins verður búið að opna allt upp á gátt á tónleikatíma kl. 21:00!

jazzmessaMIÐVIKUDAGUR KLUKKAN 21:00

Djassmessa – Dómkórinn og Tríó Sigurðar Flosasonar

Djassaðir dýrðartónar verða í forgrunni vortónleika Dómkórsins sem fær Tríó Sigurðar Flosasonar sér til fulltingis að þessu sinni.

Flutt verður „A little Jazz Mass“ eftir Bob Chilcott auk verka eftir Duke Ellington og Billy Joel. Einnig verða flutt kórverk án undirleiks eftir Stefán Arason, Auði Guðjohnsen og Hildigunni Rúnarsdóttur. Loks verður frumflutt nýtt verk eftir Sigurð Flosason. Flutningur tekur um eina klukkustund.
Guðmundur Sigurðsson Dómkantor stjórnar kórnum. Með Sigurði Flosasyni leika þeir Kjartan Valdemarsson á píanó og Gunnar Hrafnsson á bassa.
Miðaverð er 4.900 kr

Laufey Böðvarsdóttir, 15/5 2023 kl. 8.08

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS