Dómkirkjan

 

Mozart við kertaljós í Dómkirkjunni 22. desember klukkan 21.00.

Kammerhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart við kertaljós í tuttugu og þrjú ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jólaösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu. Mozart við kertaljós tónleikarnir verða í Dómkirkjunni þriðjudagskvöldið 22. desember kl. 21.00.
Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðluleikari, Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari ásamt góðum gesti, Einari Jóhannessyni sem leikur á eitt af uppáhaldshljóðfærum Mozarts ” bassetthornið”.
Á efnisskránni í ár eru Kvintettar fyrir klarinettu, bassetthorn og strengi, Kv. 411 og Kv. 580 , Allegro úr Divertimento fyrir strengi Kv.563 og Kvartett fyrir klarinettu og strengi Kv.374. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða,” Í dag er glatt í döprum hjörtum”, sem er úr Töfraflautunni eftir Mozart.
IMG_9955
Tónleikarnir eru klukkustundarlangir og hefjast þeir allir klukkan 21.00.
Aðgangseyrir er kr. 2500, og kr. 1500 fyrir nemendur og eldri borgara. Frítt er inn fyrir börn. Miðasala við innganginn.

Laufey Böðvarsdóttir, 19/12 2015 kl. 23.38

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS