Dómkirkjan

 

Tónleikar á fimmtudagskvöldið kl. 20.

Fimmtudagskvöldið 24. júlí klukkan 20.00 mun Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari styrktartónleika í Dómkirkjunni. Á dagskránni eru verk eftir Beethoven, Glinka og Händel. Ásamt Hrafnhildi koma fram þau Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari, Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari, Auður Edda Erlendsdóttir klarínettuleikari og Kristín Jóhanna Aðalsteinsdóttir píanóleikari. Tónleikarnir verða um klukkustund að lengd. Aðgangur er ókeypis, en tekið verður á móti frjálsum framlögum í skólagjaldasjóð Hrafnhildar, en hún mun hefja nám í sellóleik við Indiana University, Jacob’s School of Music nú í haust.

This coming thursday at 8 p.m. Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, cellist, will give a fundraising concert at Reykjavík Cathedral, Dómkirkjan. She will perform works by Beethoven, Glinka and Händel. The concert will be approximately an hour.

Admission is free, but donations will be greatly appreciated, to help fund Hrafnhildur’s studies at Indiana University, Jacob’s School of Music, this coming  fall. 

Laufey Böðvarsdóttir, 22/7 2014 kl. 11.54

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS