Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup leiðir bænastundina í dag, það er ljúft að eiga góða samverustund í Dómkirkjunni og koma endurnærð út í amstur dagsins. Hjartanlega velkomin.
Bæna- og kyrrðarstund í dag kl. 12:10-12:30. Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup leiðir stundina og Kári Þormar leikur á orgelið. Rjómalöguð sveppasúpa að hætti Dagbjartar í safnaðarheimilinu að bænastund lokinni. Stundin er öllum opin og er góður vettvangur til samfélags og fyrirbæna. Fyrirbænir má senda á netfangið domkirkjan@domkirkjan.is eða í síma 520-9700.
Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 11/3 2014 kl. 9.17