Dómkirkjan

 

Prjónakvöld þriðjudaginn 25. febrúar

Þriðjudagskvöldið 25. febrúar kl. 19 verður prjónakvöld í safnaðarheimili Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a. Súpa, og kaffi á vægu verði.

Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup verður gestur okkar og segir okkur frá ýmsu skemmtilegu, sem og  handverki móður sinnar  frú Magneu Þorkelsdóttur. Magnea Þorkelsdóttir var mikil hannyrðakona og urðu mörg listaverk til í höndum hennar. Hún saumaði fjölda þjóðbúninga bæði á sig og afkomendur sína. Allir velkomnir, karlar, konur, ungir sem aldnir. Það þarf ekki að hafa neitt á prjónunum, bara mæta, því maður er manns gaman ;-)

Hjartanlega velkomin.

Laufey Böðvarsdóttir, 23/2 2014 kl. 9.42

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS