Dómkirkjan

 

Dagskrá á dánardegi Jóns Sigurðssonar 7. desember

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Dómkirkjan í Reykjavík og afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar kynna dagskrá á dánardegi Jóns Sigurðssonar 7. desember.

10:30-13:00 Jón Sigurðsson og bláu miðarnir. Málþing Stofnunar Árna Magnússonar um

fræðastörf Jóns Sigurðssonar, haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns.

Bragi Þ. Ólafsson: Handritasöfnun Jóns Sigurðssonar.

Margrét Gunnarsdóttir: Ingibjörg, ungmennin og handritasöfnun Jóns.

Már Jónsson: Handritaskrásetjarinn Jón. Ritun efnisyfirlita á blá blöð.

Sigríður Hjördís Jörundsdóttir: Héðan og þaðan: Um samtíningshandritið JS 149 fol.

Sverrir Tómasson: Jón og Konráð: Tveir lærisveinar Madvigs.

13:30-14:30 Tónlistin úr útför Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur 1880 flutt

í Dómkirkjunni.

Forspil – Sorgarmars.

Lag leikið við landtöku „Sunnan bar snekkja.”

Upphafssálmur í kirkju: „Beyg kné þín…”

Cantate „Grát þú, Ísland.”

Við úthafningu „Fagra tíð er fólkið vaknar.”

Skilnaðarsöngur.

Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona flytur frásögn af útfarardeginum, 4.maí 1880.

Kjartan Óskarsson segir frá lögunum og ljóðunum.

Hjálmar Jónsson segir frá eftirmælunum.

15:00-17:00 Hátíðarfundur afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar haldinn í

Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Sólveig Pétursdóttir, formaður afmælisnefndar, opnar ráðstefnuna.

Sigurður Líndal, forseti Hins íslenska bókmenntafélags, flytur erindi um Jón Sigurðsson.

Gunnar Stefánsson, fulltrúi Hins íslenska þjóðvinafélags, flytur ávarp.

Páll Björnsson sagnfræðingur segir frá bók sinni um Jón Sigurðsson.

Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingur kynnir bók sína um Ingibjörgu Einarsdóttur.

Jónas Þór sagnfræðingur kynnir bók sína Varðinn í vestri.

Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur kynnir bókina Óskabarn.

„Sómi Íslands, sverð þess og skjöldur.”

Arnar Jónsson og Hilmar Guðjónsson leiklesa einþáttung Sveins Einarssonar sem fluttur

var á Íslendingaslóðum í Vesturheimi þjóðhátíðarhelgina 2011.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, flytur ávarp.

Fundarstjóri er Halldór Árnason.

Í fundarlok verða bornar fram léttar veitingar í boði forseta Alþingis

Ástbjörn Egilsson, 6/12 2011 kl. 11.35

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS