Orgeltónleikar
Kári Þormar dómorganisti heldur orgeltónleika á Tónlistardögum Dómkirkjunnar á þriðjudaginn 15 nóvember kl.20.00
Á efnisskránni eru verk úr ýmsum áttum m.a. orgelverk Högna Egilssonar sem hann samdi í tilefni af 25 ára afmæli orgels Dómkirkjunnar og var frumflutt á tónlistardögum í fyrra. Þar reynir á ýmsa möguleika orgelsins sem ekki heyrast dags daglega.
Þá leikur Kári prelúdíu og fúgu yfir BACH eftir Franz Liszt, en í ár eru 200 ár liðin frá fæðingu hans.
Á tónleikunum verður einnig flutt prelúdíu og fúga í C- dúr sem gengur undir nafninu 9/8, Salamanca eftir Guy Bovet, þar sem orgelið er að hluta notað sem ásláttarhljóðfæri, verk eftir V.Lubeck og Pál Ísólfsson.
Tónleikarnir hefjast kl.20 og aðgangeyrir er kr.1500
Tónlistardagarnir hafa verið fastur liður í menningarlífi Reykvíkinga á haustdögum allt frá árinu 1982, en Dómkórinn hefur haft veg og vanda af skipulagningu og rekstri þeirra.
Í ár verða 6 viðburðir á Tónlistardögum Dómkirkjunnar. Þar má nefna tónleika Kammerkórs Dómkirkjunnar, orgeltónleika Kjartans Sigurjónssonar sem leikur Gotnesku svítuna eftir Böellmann og Fantasíu og fúgu eftir Bach. Aðalviðburður Tónlistardaganna verða kórtónleikar Dómkórsins í Neskirkju. Þar verður frumflutt messa eftir Egil Gunnarsson, fyrir kór og hljómsveit, en það hefur verið áralöng hefð hjá Dómkórnum að panta tónverk eftir íslensk tónskáld.
Ástbjörn Egilsson, 15/11 2011 kl. 15.49