Uppstigningardagur
Uppstigningardagur er dagur eldri borgara í kirkjunni. Við messum kl. 14.00 og mun fyrrv. sóknarprestur Dómkirkjunnar sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson prédika. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Að lokinni messu er gestum boðið í kaffi í safnaðarheimilinu. Þar mun Hörður Bragason leika fyrir okkur á harmoniku og eldri borgarar úr Kópavogi lesa ljóð. Allir hjartanlega velkomnir
Ástbjörn Egilsson, 1/6 2011 kl. 9.57