Vígsla á sunnudag kl. 11
Fjórir prestar og tveir djáknar verða vígðir til þjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 11 á sunnudaginn. Þrír prestanna vígjast til þjónustu í norsku kirkjunni. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígir og Ingeborg Midttømme, biskup í Møre, prédikar.
Vígsluþegarnir eru:
- Kristný Rós Gústafsdóttir, sem ráðin er til þjónustu sem djákni í Ólafsvíkur og Ingjaldshólsprestakalli, Vesturlandsprófastsdæmi
- Þórey Dögg Jónsdóttir, sem ráðin er til þjónustu sem djákni í Fella og Hólakirkju, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
- cand theol Arndís Hauksdóttir, sem ráðin hefur verið prestur í Nord-Innherad prófastsdæmi í Niðarósbiskupsdæmi, Noregi
- cand theol Brynja V Þorsteinsdóttir, sem ráðin hefur verið prestur í Gauldal prófastsdæmi í Niðarósbiskupsdæmi, Noregi
- cand theol Sigurvin Jónsson, sem ráðin hefur verið æskulýðsprestur í Nesprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra,
- cand theol Þráinn Haraldsson, sem ráðinn hefur verið prestur í Álasundi, Nordre Sunnnmöre prófastsdæmi, Möre-biskupsdæmi í Noregi
Ingeborg Midttømme, biskup í Möre, prédikar, séra Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur, lýsir vígslu, séra Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari.
Vígsluvottar eru:
- Biskup Ingeborg Midttømme
- Øystein Flø, prófastur
- Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni
- séra Svavar Stefánsson
- séra Guðmundur Karl Ágústsson
- séra Ragnheiður Karítas Pétursdóttir
- séra Sigurður Árni Þórðarson
- séra Ragnar Gunnarsson
- séra Sigrún Óskarsdóttir
- séra Arnfríður Guðmundsdóttir
Ástbjörn Egilsson, 12/5 2011 kl. 12.49