Skip to content
Dómkirkjan í Reykjavík LogoDómkirkjan í Reykjavík Logo
  • Forsíða
  • Helgihald
    • Safnaðarstarf
    • Kvöldkirkjan
    • Opna húsið á þriðjudögum
    • Bæna-og kyrrðarstund á þriðjudögum
    • Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
    • Fermingarstarf
    • Örpílagrímagöngur
    • Tíðasöngur
  • Tónlistarstarf
    • Dómkórinn
    • Bach tónleikar
    • Sálmabandið
    • Vinir Marteins
  • Dagskrá
  • Myndir & myndbönd
  • Um Dómkirkjuna
    • Kirkja biskups
    • Um Dómkirkjuna
    • Vinur Dómkirkjunnar
    • Athafnir og útleiga
    • Dómkirkjukrossinn
    • Minningarkort Dómkirkjunnar
    • Sagan
      • Helgisetur frá upphafi byggðar
      • Upphaf Reykjavíkurkirkju
    • Starfsfólk
    • Sóknarnefnd
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • English
  • Forsíða
  • Helgihald
    • Safnaðarstarf
    • Kvöldkirkjan
    • Opna húsið á þriðjudögum
    • Bæna-og kyrrðarstund á þriðjudögum
    • Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
    • Fermingarstarf
    • Örpílagrímagöngur
    • Tíðasöngur
  • Tónlistarstarf
    • Dómkórinn
    • Bach tónleikar
    • Sálmabandið
    • Vinir Marteins
  • Dagskrá
  • Myndir & myndbönd
  • Um Dómkirkjuna
    • Kirkja biskups
    • Um Dómkirkjuna
    • Vinur Dómkirkjunnar
    • Athafnir og útleiga
    • Dómkirkjukrossinn
    • Minningarkort Dómkirkjunnar
    • Sagan
      • Helgisetur frá upphafi byggðar
      • Upphaf Reykjavíkurkirkju
    • Starfsfólk
    • Sóknarnefnd
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • English
Deila á Facebook
Deila á X
Senda í tölvupósti

Á annan í hvítasunnu er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson dómorganisti og Dómkórinn. Verið hjartanlega velkomin! Frítt í bílastæðin.

24/05/2026
„Vinir Ágústu vilja heiðra minningu hennar og halda nafni hennar á lofti með þessum Biblíugjöfum. Öll börn sem fermast í Dómkirkjunni hafa fengið Biblíu frá sjóðnum að gjöf frá því Ágústusjóður var stofnaður þegar Ágústa varð áttræð árið 2019. Hún vildi engar gjafir í tilefni stórafmælisins en Karl Sigurbjörnsson stakk upp á að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni og vinir hennar tóku vel í það. Þetta gladdi hana mikið og hún gaf sjálf í sjóðinn. Kærleikur hennar til Guðs orðs leyndi sér ekki og einlægur áhugi hennar að efla og styrkja trúna í samfélaginu, ekki síst miðlun trúarinnar til hinna ungu. Ágústa þekkti vel orð frelsarans um að sælla er að gefa en þiggja, og hún lifði samkvæmt því.“

„Vinir Ágústu vilja heiðra minningu hennar og halda nafni hennar á lofti með þessum Biblíugjöfum. Öll börn sem fermast í Dómkirkjunni hafa fengið Biblíu frá sjóðnum að gjöf frá því Ágústusjóður var stofnaður þegar Ágústa varð áttræð árið 2019. Hún vildi engar gjafir í tilefni stórafmælisins en Karl Sigurbjörnsson stakk upp á að stofnaður yrði sjóður í hennar nafni og vinir hennar tóku vel í það. Þetta gladdi hana mikið og hún gaf sjálf í sjóðinn. Kærleikur hennar til Guðs orðs leyndi sér ekki og einlægur áhugi hennar að efla og styrkja trúna í samfélaginu, ekki síst miðlun trúarinnar til hinna ungu. Ágústa þekkti vel orð frelsarans um að sælla er að gefa en þiggja, og hún lifði samkvæmt því.“

24/05/2026

Vorferðin verður farin suður með sjó fimmtudaginn 28. maí. Lagt verður af stað klukkan 10.00 Nánari upplýsingar hjá Laufeyju í síma 898-9703.

21/05/2026

Á hvítasunnudag klukkan 11.00 er fermingarmessa í Dómkirkjunni. Guð blessi fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra. Dómkórinn í Reykjavík leiðir safnaðarsönginn, Matthías dómorganisti og sr. Sveinn og Elínborg þjóna. Karl Sigurbjörnsson skrifaði þessi góðu orð um fermingun: Fermingin hefur um aldir verið mikilvægur þáttur í trúarlífi og samfélagi okkar. Fyrrum fylgdu ýmis borgaraleg réttindi fermingunni en það er löngu liðin tíð. Flestum finnst samt sem áður að fermingin sé ómissandi hátíð sem marki skil bernsku og unglingsára. Fermingin er reyndar eina hátíðin í okkar samfélagi sem snýst um unglinginn sérstaklega. Fjölskyldan og vinir fagna með og yfir fermingarbarninu, þakkar þá gæfu og gjöf sem það er og hefur verið og treysta jafnframt heit sín að styðja það og leiða á þroskabraut og gæfuvegi. Þakklætið og kærleikurinn sem umvefur barnið á sér dýpri vídd og skýrskotun, vegna þess að það er þökk og gleði yfir Lífinu, sem við þiggjum úr hendi Guðs. Í þeirri hendi erum við aldrei ein. Fermingin er áminning um og staðfesting þess að unglingurinn tilheyrir samfélagi sem er meir en blóðbönd og vinatengsl, samfélag kristninnar sem umlykur fortíð og framtíð í óslitinni keðju kynslóðanna í þúsund ár í landinu okkar. Það er sterk keðja, tengd saman af bæn og kærleika, trú og von. Orðið ferming merkir staðfesting. Fermingin er staðfesting þess að viðkomandi er skírður og vill játast því og staðfesting kirkjunnar á því að hinn skírði hafi hlotið uppfræðslu í grundvallaratriðum trúarinnar. Fermingarbarnið játar trúna, þiggur fyrirbæn og blessun til áframhaldandi lífsferðar sem samverkamaður Guðs í heiminum. Guð blessi fermingarbörnin öll og fjölskyldur þeirra á mikilvægum tímamótum.

19/05/2026

Dómkirkjan í Reykjavík
Kirkjustræti, 101 Reykjavík
Kennitala: 500169-5839
Netfang: domkirkjan@domkirkjan.is
Sími: 520-9700

Síður

  • Dagskrá
  • Safnaðarstarf
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Hafa samband

© 2026 Dómkirkjan í Reykjavík | Allur réttur áskilinn

Page load link