
Nú þegar við fögnum 230 ára vígsluafmæli Dómkirkjunnar er margs að minnast og margs að þakka. Það var því vel við hæfi að þakka Marinó okkar allt hans sjálfboðna starf fyrir Dómkirkjuna. Hann tók sæti í sóknarnefndinni 1985, var lengi formaður sóknarnefndar. Hann var einnig formaður endurbótanenfdar, þegar hinar miklu endurbætur á kirkjunni fóru fram um síðustu aldamót. Þökkum fyrir dýrmæta stund með góðu fólki


