Skip to content
Dómkirkjan í Reykjavík LogoDómkirkjan í Reykjavík Logo
  • Forsíða
  • Helgihald
    • Safnaðarstarf
    • Kvöldkirkjan
    • Opna húsið á þriðjudögum
    • Bæna-og kyrrðarstund á þriðjudögum
    • Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
    • Fermingarstarf
    • Örpílagrímagöngur
    • Tíðasöngur
  • Tónlistarstarf
    • Dómkórinn
    • Bach tónleikar
    • Sálmabandið
    • Vinir Marteins
  • Dagskrá
  • Myndir & myndbönd
  • Um Dómkirkjuna
    • Kirkja biskups
    • Um Dómkirkjuna
    • Vinur Dómkirkjunnar
    • Athafnir og útleiga
    • Dómkirkjukrossinn
    • Minningarkort Dómkirkjunnar
    • Sagan
      • Helgisetur frá upphafi byggðar
      • Upphaf Reykjavíkurkirkju
    • Starfsfólk
    • Sóknarnefnd
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • English
  • Forsíða
  • Helgihald
    • Safnaðarstarf
    • Kvöldkirkjan
    • Opna húsið á þriðjudögum
    • Bæna-og kyrrðarstund á þriðjudögum
    • Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar
    • Fermingarstarf
    • Örpílagrímagöngur
    • Tíðasöngur
  • Tónlistarstarf
    • Dómkórinn
    • Bach tónleikar
    • Sálmabandið
    • Vinir Marteins
  • Dagskrá
  • Myndir & myndbönd
  • Um Dómkirkjuna
    • Kirkja biskups
    • Um Dómkirkjuna
    • Vinur Dómkirkjunnar
    • Athafnir og útleiga
    • Dómkirkjukrossinn
    • Minningarkort Dómkirkjunnar
    • Sagan
      • Helgisetur frá upphafi byggðar
      • Upphaf Reykjavíkurkirkju
    • Starfsfólk
    • Sóknarnefnd
    • Fréttir
    • Hafa samband
  • English
Deila á Facebook
Deila á X
Senda í tölvupósti

Á hvítasunnudag klukkan 11.00 er fermingarmessa í Dómkirkjunni. Guð blessi fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra. Dómkórinn í Reykjavík leiðir safnaðarsönginn, Matthías dómorganisti og sr. Sveinn og Elínborg þjóna. Karl Sigurbjörnsson skrifaði þessi góðu orð um fermingun: Fermingin hefur um aldir verið mikilvægur þáttur í trúarlífi og samfélagi okkar. Fyrrum fylgdu ýmis borgaraleg réttindi fermingunni en það er löngu liðin tíð. Flestum finnst samt sem áður að fermingin sé ómissandi hátíð sem marki skil bernsku og unglingsára. Fermingin er reyndar eina hátíðin í okkar samfélagi sem snýst um unglinginn sérstaklega. Fjölskyldan og vinir fagna með og yfir fermingarbarninu, þakkar þá gæfu og gjöf sem það er og hefur verið og treysta jafnframt heit sín að styðja það og leiða á þroskabraut og gæfuvegi. Þakklætið og kærleikurinn sem umvefur barnið á sér dýpri vídd og skýrskotun, vegna þess að það er þökk og gleði yfir Lífinu, sem við þiggjum úr hendi Guðs. Í þeirri hendi erum við aldrei ein. Fermingin er áminning um og staðfesting þess að unglingurinn tilheyrir samfélagi sem er meir en blóðbönd og vinatengsl, samfélag kristninnar sem umlykur fortíð og framtíð í óslitinni keðju kynslóðanna í þúsund ár í landinu okkar. Það er sterk keðja, tengd saman af bæn og kærleika, trú og von. Orðið ferming merkir staðfesting. Fermingin er staðfesting þess að viðkomandi er skírður og vill játast því og staðfesting kirkjunnar á því að hinn skírði hafi hlotið uppfræðslu í grundvallaratriðum trúarinnar. Fermingarbarnið játar trúna, þiggur fyrirbæn og blessun til áframhaldandi lífsferðar sem samverkamaður Guðs í heiminum. Guð blessi fermingarbörnin öll og fjölskyldur þeirra á mikilvægum tímamótum.

19/05/2026

Góð vika framundan og fallegur sólskindagur í dag. Laudes- morgunsöngur kl. 9. 15 á morgun, þriðjudag. Bæna- og kyrrðarstund kl. 12.00. Mælum með að gefa sér stund frá amstri dagsins og njóta í helgidómnum. Léttur hádegisverður og gott samfélag í safnaðarheimilinu eftir stundina. Á morgun ætlar Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar að borða saman og fara síðan á tónleika Ólafs Elíassonar kl. 20.00 í Dómkirkjunni. Skráning í matinn hjá formanni kirkjunefndar Eddu Einarsdóttur edda@ark.is Öll þriðjudagskvöld klukkan 20.00-20.30 eru Bach tónleikar. Ólafur Elíasson leikur prelódíur og fúgur á nýja Dómkirkjuflygilinn. Á miðvikudaginn er morgunsöngur kl. 9.15. Velkomin!

18/05/2026

Sunnudaginn 17. maí er messa klukkan 11.00. Séra Sveinn Valgeirsson, Matthías Harðarson og Dómkórinn. 17. maí er þjóðhátíðardagur norðmanna og er norsk guðþjónusta kl. 14.00. Séra Þorvaldur Víðisson, Kári Þormar organisti og félagar úr Dómkórnum leiða sönginn. Verið hjartanlega velkomin til kirkju á sunnudaginn.

13/05/2026

Á uppstigningardag er messa klukkan 11.00. Séra Elínborg Sturludóttir, Matthías Harðarson og Dómkórinn í Reykjavík. Uppstigningardagur er fimmtudagur 40 dögum eftir páska. Hann er helgidagur kristinna til minningar um himnaför Jesú. Á ári aldraðra 1982 var uppstigningardagurinn valinn kirkjudagur aldraðra á Íslandi. Verið hjartanlega velkomin!

13/05/2026

Dómkirkjan í Reykjavík
Kirkjustræti, 101 Reykjavík
Kennitala: 500169-5839
Netfang: domkirkjan@domkirkjan.is
Sími: 520-9700

Síður

  • Dagskrá
  • Safnaðarstarf
  • Fréttir
  • Starfsfólk
  • Hafa samband

© 2026 Dómkirkjan í Reykjavík | Allur réttur áskilinn

Page load link