Dómkirkjan

 

Bænastund í hádeginu á morgun og Ungdóm annað kvöld.

Á morgun, þriðjudag er fyrirbænastund í hádeginu. Að henni lokinni er létt máltíð í safnaðarheimilinu við Vonarstræti. Stundin er öllum opin og er góður vettvangur til samfélags og fyrirbæna. Fyrirbænir má senda á netfangið domkirkjan@domkirkjan.is eða í síma 520-9700.
Um kvöldið, kl. 19:30 – 21:00 verður Mafíukvöld í Ungdóm, æskulýðsleiðtogarnir okkar taka vel á móti fermingarbörnunum. Farið verður í ráðgátuleikinn Mafíu og ítalskar flatbökur verða á boðstólnum í boði kirkjunnar. Vonumst til að sjá ykkur sem flest!

Laufey Böðvarsdóttir, 22/9 2014 kl. 18.54

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS