Opna húsið verður á þriðjudögum vorið 2025
Alla þriðjudaga frá 12:00-14:30 frá hausti fram á vor er opið hús í Safnaðarheimilinu. Margt er til gamans gert, fróðleiks og skemmtunar. Við förum í dagsferðir bæði vor og haust. Við hvetjum alla til að líta við. Engin þörf er á að láta skrá sig sérstaklega, bara kíkja inn og við tökum vel á móti þér. Alltaf eitthvað gott með kaffinu.