Skírdagur.
Fermingarmessa k. 11, sr. Hjálmar Jónsson og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.
Kvöldmessa kl. 20. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, sr. Anna sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari
Organisti er Kári Þormar. Dómkórinn syngur.
Föstudagurinn langi.
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur organisti er Kári Þormar..
Krossferill Krists kl. 14. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir ásamt lesurum. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.
Páskadagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Herra Karl Sigurbjörnsson prédikar . Dómkirkjuprestar þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar
Hátíðarmessa kl. 11 sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar
2. páskadagur
Messa kl. 11, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari . Dómkórinn syngur organisti er Kári Þormar.
Ástbjörn Egilsson, 4/4 2012
Næsta sunnudag sem er pálmasunnudagur er ferming. Athöfnin hefst kl. 11. Báðir Dómkirkjuprestarnir þjóna. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Að þessu sinni fermast 8 unglingar.
Ástbjörn Egilsson, 29/3 2012
Næsta sunnudag þann 25. mars er messað kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Sunnudagakólinn er á kirkjuloftinu undir leiðsögn Ólafs Jóns og Árna Gunnars.
Ástbjörn Egilsson, 22/3 2012
Næsti sunnudagur 18. mars er fjórði sunnudagur í föstu. Tvær messur eru í Dómkirkjunni þennan sunnudag. Sú fyrri kl. 11 þar sem sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Sunnudagskólin er á kirkjuloftinu undir öruggri leiðsögn Árna Gunnars og Ólafs Jóns. Kl. 20 er síðan æðruleysismessa og þar prédikar sr. Hjálmar Jónsson en Karl V. Matthíasson þjónar ásamt honum. Bræðarbandið sér að venju um tónlistina
Ástbjörn Egilsson, 15/3 2012
Næsta sunnudag 11. mars er messað kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari en Eva Björk Valdimarsdóttir guðfræðinemi prédikar. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Í messunni verður barn borið til skírnar. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu að venju.
Ástbjörn Egilsson, 9/3 2012
Næsta sunnudag 4. mars sem er æskulýðsdagur kirkjunnar er æskulýðsmessa kl.11 í Dómkirkjunni. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir leiðir helgihaldið en Eva Björk Valdimarsdóttir guðfræðinemi flytur hugvekju. Stúlknakór Reykjavíkur syngur ,stjórnendur eru Margrét Pálmadóttir og Guðrún Á. Guðmundsdóttir. Organisti er Kári Þormar. Æskulýðsleiðtogarnir okkar þeir Ólafur Jón og Árni Gunnar taka þátt í helgihaldinu og vænst er þátttöku fermingarbarna.
Ástbjörn Egilsson, 1/3 2012
Næsta sunnudag 19. febrúar eru tvær messur í Dómkirkjunni. Sr. Hjálmar Jónsson messar kl. 11. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu á messutíma. Kl. 2o er æðruleysismessa þar sem Karl V. Matthíasson og Dómkirkjuprestar þjóna en Bræðrabandið sér um tónlistina.
Ástbjörn Egilsson, 15/2 2012
Næsta sunnudag 12. febrúar er messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Barn verður borið til skírnar. Kór átthagafélags Strandamanna kemur í heimsókn og syngur í messunni undir stjórn Arngerðar Valgarðsdóttur. Organisti er Kári Þormar. Að lokininni messu syngur kórinn nokur lög fyrir kirkjugesti en síðan verður haldið í safnaðarheimilið í Vonarstræti og er þar boðið upp á kaffi og meðlæti. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu meðan á messu stendur.
Ástbjörn Egilsson, 9/2 2012
Næsta sunnudag 5. febrúar er messa kl. 11 í Dómkirkjunni. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Kári Þormar. Sunnudagaskólinn er á kirkjuloftinu á sama tíma.
Ástbjörn Egilsson, 3/2 2012
Meðal fastra liða í starfi safnaðarins eru hádegisbænastundir á þriðjudögum kl. 12.10. Um er að ræða stutta fyrirbænastund sem stendur til 12.30 og að bænastundinni lokinn er framreiddur léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu. Við bendum sérstaklega fólki sem vinnur í miðbænum á þessar stundir. Einnig viljum við minna á opið hús fyrir eldri borgara á fimmtudögum kl. 13.30 -15.30. Kaffi og meðlæti er á boðstólum við vægu verði og hér ríkir góður andi og vinátta. Við lesum úr áhugaverðum bókum.förum saman stuttar ferðir og eigum saman góðar stundir. allir hjartanlega velkomnir.
Ástbjörn Egilsson, 1/2 2012