Dómkirkjan

 

Sunnudagur 29. maí

Næsta sunnudag sem er 29. maí er messað kl. 11 í Dómkirkjunni að venju. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar. Í messunni verður fermd Anna Sóley Jensdóttir Framnesvegi 28, 101 Reykjavík.

Ástbjörn Egilsson, 27/5 2011

Brasilískur gítarleikari í Dómkirkjunni

Brasilíski gítarleikarinn Fabricio Mattos heldur tónleikana í Dómkirkjunni föstudagskvöldið 27.maí kl. 20:00

Gítarleikarinn ungi hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir gítarleik sinn og eftir hann liggur fjöldi hljóðritana. Hann stundaði nám í Royal Academy of Music í London en býr nú í Tórínó á Ítalíu.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hans:

http://www.fabriciomattos.com/

Ástbjörn Egilsson, 27/5 2011

Sunnudagur 22. maí

Næsti sunnudagur er fjórði sunnudagur eftir páska. Kl. 11 messar sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur,organisti er Kári Allansson.

Ástbjörn Egilsson, 19/5 2011

Orgeltónleikar mánudagskvöld

Norski organistinn Stig Wernø Holter heldur tónleika í Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 16. maí kl. 20.00. Stig fæddist í Osló árið 1953 og lærði við Tónlistarháskóla Noregs og Guðfræðiháskólann í Osló og í Kaupmannahöfn og Stuttgart. Hann er í dag 1. amanuensis við Griegakademíuna við Háskólann í Björgvin.

Dagskrá tónleikanna verður sem hér segir:

Johann Sebastian Bach (1685-1750): Preludium og fuge i h-moll (BWV 544)

Egil Hovland (*1924): Koralpartita over “Herre Gud, ditt dyre navn og ære.”

Ludvig Nielsen (1906-2001): Nidarosdomens klokker

Jón Þórarinsson (f. 1917): Preludium, Choral und Fuge über ein altes Thema

Ástbjörn Egilsson, 12/5 2011

Vígsla á sunnudag kl. 11

Fjórir prestar og tveir djáknar verða vígðir til þjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík kl. 11 á sunnudaginn. Þrír prestanna vígjast til þjónustu í norsku kirkjunni. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, vígir og Ingeborg Midttømme, biskup í Møre, prédikar.

Lesa áfram …

Ástbjörn Egilsson, 12/5 2011

Vivaldi og Haydn

Dómkórinn  býður sumarið velkomið  á laugardaginn 7.maí  með flutningi á Gloriu Vivaldis.

Dómkórinn ásamt kammersveitinni Aldavinum flytja Gloriu Rv 589 eftir Antonio Vivaldi og Missa brevis Sancti Joannis de Deo eftir Joseph Haydn.Einsöngvarar eru þær Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Sigurlaug Knudsen messósópran. Stjórnandi er Kári Þormar

Miðaverð við inngang kr.2000 eða kr.1500 hjá kórfélögum. Ekki er tekið við kortum. Tónleikarnir  hefjast kl.16.00

Lesa áfram …

Ástbjörn Egilsson, 6/5 2011

Sunnudagur 8. maí

Sunnudaginn 8. maí höldum við fjölskyldumessu. Messan er í umsjá sr. Önnu Sigríðar Pálsdóttur og markar lok barna og æskulýðsstarfsins í vetur. Við fáum í heimsókn kór sem settur er saman af stúlkum frá Vesturbæjar og Grandaskóla auka stúlkna frá stúlknakór Reykjavíkur. Stjórnanadi er þórdís Guðmundsdóttir. Undirleikari og organisti er Kári Þormar. Við fáum einnig í heimsókn Stoppleikhópinn sem sýnir leikþáttinn “Ósýnilegi vinurinn”

Ástbjörn Egilsson, 4/5 2011

Sunnudagur 1.maí

Næsta sunnudag þann 1. maí er messað kl. 11 í Dómkirkjunni. Sr. Hjálmar Jónson prédikar og þjónar fyrir altari. Að þessu sinni fáum við gestakór en það er Húnakórin sem er undir stjórn Jóns Bjarnasonar sem einnig leikur á orgelið í messunni. Við bjóðum þau og alla aðra gesti hjartanlega velkomna

Ástbjörn Egilsson, 28/4 2011

Páskadagskrá Dómkirkjunnar

Skírdagur.

Fermingarmessa k. 11, sr. Hjálmar Jónsson. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.

Kvöldmessa kl. 20 sr. Þórir Stephensen prédikar sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari

Organisti er Kári Þormar. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur.

Föstudagurinn langi.

Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Árni Svanur Daníelsson prédikar. Dómkórinn syngur organisti er Kári Þormar..

Krossferill Krists kl. 14. Sr. Hjálmar Jónsson ásamt lesurum. Dómkórinn  syngur,organisti er Kári Þormar.

Páskadagur.

Hátíðarguðsþjónusta kl. 8. Herra Karl Sigurbjörnsson prédikar . Sr. Hjálmar Jónsson   þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar

Hátíðarmessa kl. 11 sr. Árni Svanur Daníelsson prédikar,sr. Hjálmar Jónsson þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar

2. páskadagur

Messa kl. 11, sr. Hjálmar Jónsson  prédikar. Dómkórinn syngur organisti er Kári Þormar.

Messa kl. 14 í Kolaportinu Hjálmar Jónsson prédikar Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina

Ástbjörn Egilsson, 20/4 2011

Pálmasunnudagur

Næsta sunnudag sem er pálmasunnudagur er fermingarmessa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson fermir 7 ungmenni. Dómkórinn syngur,organisti er Kári Þormar.

Kl. 20 er æðruleysismessa og þar þjóna þeir sr. Karl V. Matthíasson sem prédikar og sr. Hjálmar Jónsson og sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. Bræðurnir Hörður og Birgir Bragasynir sjá um tónlistina.

Ástbjörn Egilsson, 13/4 2011

Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14

Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.

Skráning í fermingarfræðslu

 

Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS