Minni á bæna-og kyrrðarstundina á morgun kl. 12:10. Létt máltíð í safnaðarheimilinu að henni lokinni. Notaleg stund og góð samvera í hádeginu. Hjartanlega velkomin
Laufey Böðvarsdóttir, 20/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 20/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 20/10 2014
Nú er vika í næsta prjónakvöld, en það verður mánudagskvöldið 27. október. Það byrjar kl. 19 og við fáum hjónin í Annríki þau; Ásmund, gullsmið og Guðrúnu Hildi, klæðskera og kjólameistara. Þau sérhæfa sig í öllu sem viðkemur gerð íslenskra búninga, saumi, smíði, lagfærðingum ásamt þvi að kenna og fræða. Á prjónakvöldinu ætla þau að vera með tvo faldbúninga og handverk þeim tengdum. Það er gríðarlega fjölbreytt og ætti að höfða til þeirra sem eru áhugasamir um handverk almennt.
Laufey Böðvarsdóttir, 20/10 2014
Séra Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari á sunnudaginn.Dómkórinn syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Feðgarnir Magnús Geir og Kjartan lesa ritningarlestrana, en Magnús Geir mun fermast í vor. Barnastarfið á kirkjuloftinu á sama tíma í umsjón, Ólafs Jóns og Sigga Jóns. Fundur með fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Hjartanlega velkomin.
Laufey Böðvarsdóttir, 17/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 15/10 2014
Séra Hjálmar Jónsson er í námsleyfi um einsmánaðar skeið og mun séra Karl Sigurbjörnssn leysa hann af á meðan. Séra Karl byrjar á morgun og mun hann leiða bæna-og kyrrðarstundina í hádeginu sem byrjar kl. 12:10. Að henni lokinni er góð máltíð í safnaðarheimilinu sem Ásta og Katrín sjá um. Hlökkum til að sjá ykkur.
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Bókin: Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum eftir sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson er komin úr prentun og er til sölu hjá Laufeyju í síma 520-9700. I Byggingasagan og II Í iðu þjóðlífs eftir sr. Þóri Stephensen fyrrum dómkirkjuprest komu út í einu bindi á 200 ára afmæli kirkjunnar 1996. Tíminn sem síðan er liðinn hefur verið mjög viðburðarríkur, framkvæmdir og breytingar hafa orðið sem nauðsynlegt var talið að gera skil.
Í þessarri bók er þó áherslan fyrst og fremst á starfinu í Dómkirkjunni og á vegum safnaðar hennar. Margt fólk hefur komið að þar við sögu og er sjálfsagt að hlut þess séu gerð skil, svo mjög sem allt það sem fram hefur farið hefur byggst á framlagi þess.
Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum er í pappírskilju, ríkulega prýdd myndum, eintakið kostar 5000 krónur.
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Laufey Böðvarsdóttir, 13/10 2014
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar heldur sinn fyrsta fund mánudaginn 13. október. Fundarkonur eru að koma í hús á milli 17 og 17:30.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands verður gestur okkar. Kirkjunefndin var stofnuð til þess að standa að prýði Dómkirkjunnar og vinna að líknarmálum. Kirkjunefndin hittist mánaðarlega yfir vetrartímann. Á næsta ári fögnum við 85 ára afmæli KKD.
KKD konur ætla að mæta í bleiku eða með eitthvað bleikt í tilefni af árveknis- og fjáröflunarátakinu Bleiku slaufunni sem stendur yfir í október.
Laufey Böðvarsdóttir, 10/10 2014
Kirkjan er opin alla virka daga frá 10-14
Viðtalstímar presta eru í safnaðarheimilnu
Lækjargötu 14a,
þri-fös 11-12 og eftir samkomulagi.
Sími: 520-9700.
Skráning í fermingarfræðslu
- 13.00- 14.30 Opna húsið í safnaðarheimilinu, samvera, fræðsla og gott með kaffinu. Yfir vetrarmánuðina.
Tíðasöngur kl. 17.00 yfir vetrarmánuðina.
21.00 AA fundur
Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi