Djáknavígsla sunnudaginn 29. september
Djáknavígsla fer fram í Dómkirkjunni kl. 11. Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir mun vígja Hólmfríði Ólafsdóttur til djáknaþjónustu í Bústaðasókn. Vígsluvottar verða: Séra Anna Sigríður Pálsdóttir Dómkirkjuprestur, sem jafnframt þjónar fyrir altari, Árni Sigurjónsson, formaður sóknarnefndar Bústaðasóknar, Rut G. Magnúsdóttir, formaður Djáknafélags Íslands og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Sunnudagskólinn er á sama tíma á kirkjuloftinu.
Kolaportsmessa kl. 14:00
Ástbjörn Egilsson, 26/9 2013 kl. 9.27