Í dag, uppstigningardag er guðþjónusta klukkan 11.00. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og séra Elínborg Sturludóttir þjónar fyrir altari. Haukur Guðlaugsson spilar á flygilinn og Gunnar Kvaran leikur á selló. Pétur Nói Stefánsson leikur for-og eftirspil á orgelið. Helga Hjálmtýsdóttir og Jón B. Guðlaugsson lesa ritningarlestrana. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Messukaffi. Verið velkomin í Dómkirkjuna!
Laufey Böðvarsdóttir, 13/5 2021 kl. 8.06