Á uppstigningardag er guðþjónusta klukkan 11.00. Karl Sigurbjörnsson, biskup mun prédika og séra Elínborg Sturludóttir þjóna fyrir altari. Haukur Guðlaugsson spilar á flygilinn og Gunnar Kvaran á selló. Pétur Nói Stefánsson leikur for-og eftirspil á orgelið. Kammerkór Dómkirkjunnar syngur undir stjórn Kára Þormar dómorganista. Messukaffi. Verið velkomin í Dómkirkjuna!
Laufey Böðvarsdóttir, 13/5 2021 kl. 8.05