Dómkórinn flytur verk eftir Jón Nordal og barnabörn hans Þorkel og Hjalta Nordal. >>English below<< Eftir Jón Nordal verða fluttir Óttusöngvar að vori, sem voru frumfluttir í Skálholtskirkju í júlí 1993. Verk Þorkels Nordal, Orðfæri og verk Hjalta Nordal, Umbót, eru samin að beiðni Dómkórsins með styrk frá Tónmenntasjóði kirkjunnar og Tónlistarsjóði og verða þau frumflutt á tónleikunum í Hallgrímskirkju. Einsöngvarar eru Harpa Ósk Björnsdóttir sópran og Jón Svavar Jósefsson kontratenór. Inga Rós Ingólfsdóttir leikur á selló, Frank Aarnink á slagverk og Björn Steinar Sólbergsson á orgel. Stjórnandi er Kári Þormar dómorganisti. Dómkórinn hefur haldið fjölda tónleika bæði hérlendis og erlendis og hefur hvarvetna hlotið lof fyrir, nú síðast í sumar í Salzburg þar sem kórinn vann til verðlauna í alþjóðlegri kórakeppni. Verkefnaval kórsins hefur verið fjölbreytt en meðal annars hefur kórinn flutt ýmis stórvirki tónbókmenntanna og má þar nefna Þýska sálumessu Jóhannesar Brahms, Jólaóratoríu Jóhanns Sebastians Bach, Requiem eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Messías eftir Händel, Jóhannesarpassíu Jóhanns Sebastians Bach og sálumessur eftir Maurice Duruflé og Gabriel Fauré. ————— Night songs – Icelandic Contemporary Music Reykjavík Cathedral Choir Conductor: Kári Þormar Program: Þorkell Nordal – Orðfæri Hjalti Nordal – Umbót Jón Nordal – Óttusöngvar Soloists: Harpa Ósk Björnsdóttir, soprano Jón Svavar Jósefsson, contra tenor Björn Steinar Sólbergsson, organ Frank Aarnink, percussion Inga Rós Ingólfsdóttir, cello Hallgrímskirkja Church, Sunday November 24, 17:00 hrs
Laufey Böðvarsdóttir, 23/11 2019 kl. 0.57