Dómkirkjan

 

1. júlí útskrifuðust fimm prestsefni og þrjú djáknaefni úr starfsþjálfun þjóðkirkjunnar. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup hafði helgistund í Dómkikjunni og afhenti kandídötum skírteini til staðfestingar þess að þau hefðu nú embættisgengi. Þær sem útskrifuðust með djáknamenntun eru Aðalbjörg Pálsdóttir með BA próf, Jóna Heiðdís Guðmundsóttir og Margrét Steinunn Guðjónsdóttir með viðbótar-diplómanám. Guðfræðikandídatarnir sem útskrifuðust eru Benjamín Hrafn Böðvarsson, Dagur Fannar Magnússon, Erna Kristín Stefánsdóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Pétur Ragnhildarson útskrifaðist fyrr á árinu, en var með við helgistundina. Á myndina vantar Ernu Kristínu Stefánsdóttur.

Laufey Böðvarsdóttir, 4/7 2019 kl. 9.45

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS