Sveinn Einarsson kemur í opna húsið á morgun, fimmtudag.
Sveinn Einarsson, fyrrverandi leikhússtjóri kemur í opna húsið á morgun og segir okkur frá Guðmundi Kamban. Dagbjört sér um að við fáum eitthvað gott með kaffinu. Opna húsið er frá 13:30-15:30. Það er alltaf notalegt að hittast hérna í fallega safnaðarheimilinu við Tjörnina, hitta gott fólk, fræðast og njóta góðra veitinga. Hlökkum til að sjá ykkur.
Laufey Böðvarsdóttir, 26/2 2014 kl. 15.29