Hátíðarmessa klukkan 11.00 í Dómkirkjunni á sjómannadaginn. Séra Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Elínborgu Sturludóttur dómkirkjupresti. Dómkórinn syngur undir stjórn Láru Bryndísar Eggertsdóttur organista sem leikur á orgelið. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur einsöng og Hekla Sigríður Ágústsdóttir leikur á trompet. Ásgrímur L. Ásgrímsson og Klara Bjartmarz lesa ritningarlestrana.
Laufey Böðvarsdóttir, 30/5 2025 kl. 13.16