Dómkirkjan

 

Margt áhugavert og skemmtilegt í safnaðarstarfinu! Þriðjudaginn 11. mars er tíðasöngur kl. 9.15. Bæna-og kyrrðarstund kl. 12.00 og í framhaldinu af henni er hádegisveðrur í safnaðarheimilinu og Opna húsið. Þangað fáum við hjónin Óttar Guðmundsson lækni og Jóhönnu V. Þórhallsdóttur í heimsókn. Þau munu segja frá Sigurði Breiðfjörð. Kaffiveitingar. Bach tónleikar Ólafs Elíassonar öll þriðjudagskvöld.

Á miðvikudaginn er tíðasöngur kl. 9.15 og örganga með séra Elínborgu kl. 18.00.
Á fimmtudaginn er tíðasöngur kl. 9.15 og kl. 17.00. Í framhaldi af tíðasöngnum er séra Sveinn Valgeirsson sóknarprestur með Biblíulestur 4 fimmtudaga á föstunni frá 17:30-18:30. Við rifjum upp biblíusögurnar úr Fyrstu Mósebók og veltum fyrir okkur persónum og leikendum; samhengi og sögu. Biblíulesturinn er öllum opinn. Kvöldkirkjan klukkan 20.-22. Yndisleg stund með tali og tónum í kirkjunni.
Sunnudaginn 16. mars er messa klukkan 11.00, sr. Elínborg Sturludóttir, Dómkórinn og Guðmundur Sigurðsson organisti.
Verið hjartanlega velkomin!

Laufey Böðvarsdóttir, 10/3 2025 kl. 13.00

     

    Kirkjustræti, 101 Reykjavík.. Sími 5209700 , fax 5209701 · Kerfi RSS