Við hátíðarmessu 30. október kl.11 mun séra Þórir Stephensen prédika og fyrrverandi prestar kirkjunnar þjóna, þau sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson og sr. Anna Sigríður Pálsdóttir, ásamt settum sóknarpresti, sr. Sveini Valgeirssyni. Dagbjört Andrésdóttir syngur einsöng, Dómkórinn og organisti er Kári Þormar. Lesarar Helga Hjálmtýsdóttir, Marinó Þorsteinsson og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir. Barnastarfið á kirkjuloftinu í umsjón Helgu Kolbeinsdóttur. Messukaffi í safnaðarheimilinu. Minni á bílastæðin gengt Þórshamri.
Laufey Böðvarsdóttir, 26/10 2016 kl. 9.08