Lífleg vika framundan í safnaðarstarfinu.
Á morgun, þriðjudag er bæna-og kyrrðarstund í hádeginu í kirkjunni. Ólafur Elíasson leikur prelodíur Bach kl. 20.30-21.00. UNGDÓM samvera í safnaðarheimilinu kl. 19-30-21.00.
Á miðvikudaginn er Samtal um trú kl. 18 -20:30.
Á fimmtudaginn fáum við Helga Skúla Kjartansson í Opna húsið.
Á laugardaginn er kyrrðardagur í safnaðarheimilinu frá kl. 8:30- 15.
Séra Hjálmar prédikar í messunni á sunnudaginn kl. 11.00. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað.
Verið hjartanlega velkomin.
Hér koma nokkrar myndir frá skemmtilegri fjölskyldumessu sl. sunnudag
Laufey Böðvarsdóttir, 7/3 2016 kl. 19.23